Innlent

Samningar breiðfylkingar nánast í höfn en verk­falls­boðun hjá Icelandair

Heimir Már Pétursson skrifar
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir vel hafa gengið í viðræðum breiðfylkingarinnar og SA í dag og líkur á að skrifað verði undir samninga á morgun.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir vel hafa gengið í viðræðum breiðfylkingarinnar og SA í dag og líkur á að skrifað verði undir samninga á morgun. Stöð 2/Sigurjón

Allt bendir til að skrifað verði undir nýja kjarasamninga breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins á morgun en vel hefur gengið í viðræðum þeirra í dag. Ef af verður mun ríkisstjórin einnig kynna aðgerðarpakka sinn í tengslum við samningana.

Samingar breiðfylkingar stéttarfélaga innan ASÍ við Samtök atvinnulífsins fela í sér hóflegar launahækkanir næstu fjögur árin og er ætlað að stuðla að því að verðbólga minnki hratt og vextir lækki. Laun hækka að lágmarki um 23.250 krónur á ári en hjá þeim sem eru með um 750 þúsund krónur á mánuði og meira hækki laun um 3,25 prósent á þessu ári og 3,5 prósent á ári næstu þrjú ár.

Það er hins vegar ókyrrð í samskiptum VR og Icelandair. VR hefur boðað atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls starfsmanna hjá flugfélaginu á Keflavíkurflugvelli sem myndi hefjast hinn 22. mars vegna deilna um vaktafyrirkomulag.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að reynt hafi verið árangurslaust á undanförnum árum að ná eyrum Samtaka atvinnulífsins og Icelandair um breytingar á því fyrirkomulagi að dagvaktir starfafólks í innritun og hleðslu væru slitnar í sundur.

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir með ólíkindum að boða atkvæðagreiðslu um verkfall þegar Icelandair hafi ekki gefist kostur á að kynna sér og bregðast við kröfurgerð VR.Stöð 2/Steingrímur Dúi

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir félagið og ferðaþjónustuna ekki mega við áföllum eftir krefjandi aðstæður á undanförnum árum. Þá hafi einungis verið haldinn einn fundur í deilunni og ekki boðað til annars fundar.

„Þá er það með algerum ólíkindum að það sé búið að boða verkfall án þess að félaginu hafi verið gefið ráðrúm til að fara yfir málin og ræða við mótaðilann. Sem er alltaf gert í samningaviðræðum. Þannig að þessi staða sem upp er komin er með miklum ólíkindum,“ segir Bogi Nils.

Þarf ekki að spyrja, þú vonar auðvitað að þetta verkfall skelli ekki á?

„Að sjálfsögðu. En fyrst þarf auðvitað að ræða málin. Það er algerlega ótrúlegt að búið sé að boða til atkvæðagreiðslu um verkfall án þess að búið sé að halda einn fund um kröfugerðina,“ segir Bogi Nils Bogason.


Tengdar fréttir

Ekki hlustað á starfsmenn í mörg ár

Formaður VR segir ekki boðlegt að slíta sundur dagvinnuvaktir starfsmanna félagsins hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Ekki hafi verið hlustað á kröfur um breytingar undanfarin ár og þess vegna hafi verið ákveðið að boða til verkfalls þessara starfsmanna hjá Icelandair.

Framsókn hvetur sveitarfélög til að styðja gjaldfrjálsar skólamáltíðir

Sveitarstjórnarráð Framsóknarflokksins hvetur sveitarstjórnarfólk um land allt til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á vinnumarkaði, sem hafi það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum í landinu. Í ályktun ráðsins sem samþykkt var á fundi í gærkvöldi segir að lækkun vaxta auki kaupmátt allra heimila.

Sveitar­fé­lögin tali skýrt um gjald­skrár­lækkanir og fríar skóla­mál­tíðir

Ekki verður skrifað undir nýja kjarasamninga nema sveitarfélögin leggi skýrt fram til hvaða aðgerða þau eru reiðubúin að grípa til að tryggja frið á vinnumarkaði næstu fjögur árin, að sögn formanns Starfsgreinasambandsins. Hann er hins vegar bjartsýnn á að leyst verði úr þeim ágreiningsefnum sem eftir eru í viðræðum við Samtök atvinnulífsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×