Viðskipti innlent

Play tekur flugið til Afríku

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Jamaa El Fna í Marrakesh.
Jamaa El Fna í Marrakesh. Unsplash/Beatrice Sana

Flugfélagið PLAY hefur hafið miðasölu til tveggja nýrra áfangastaða. Annars vegar til Marrakesh í Marokkó og hins vegar Madeira í Portúgal. Flug Play til Marrakesh verður áætlunarflugið milli Íslands og Afríku.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Play. Þar segir að fyrsta flugið til Madeira verði 15. október og fyrsta flugið til Marrakesh þann 17. október.

Flugtíminn til Marrakesh frá Íslandi eru rétt rúmir fimm tímar en til samanburðar er flugtíminn til Tenerife um fimm og hálfur tími.

„Borgin Marrakesh uppfyllir kröfur þeirra sem þurfa útrás fyrir ævintýraþrána. Götumarkaðir og einstök byggingarlist setja svip sinn á þessa sögufrægu borg þar sem er hægt að gleyma sér við að skoða handverk innfæddra. Matarmarkaðirnir sem teygja sig út í hið óendanlega eru einnig upplifun út af fyrir sig þar sem bragðlaukar munu sannarlega fá nægju sína,“ segir í tilkynningunni.

„Við höldum áfram að stækka úrvalið sem við bjóðum upp á af áfangastöðum fyrir sólþyrsta Íslendinga og er leiðakerfið okkar í suður Evrópu eitt það veglegasta sem sést hefur á Íslandi. Við erum með átta áfangastaði á Spáni og nú þrjá sem tilheyra Portúgal. Þar að auki bætum við hinni töfrandi borg Marrakesh við leiðakerfið okkar og ég hef fulla trú á að Íslendingar muni taka vel í þessar fyrstu áætlunarferðir á milli Íslands og Afríku,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×