Lífið

Söngsnillingar léku á als oddi á Öskudeginum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Þessar hressu stelpur sungu meðal annars fyrir starfsmenn Eirbergs í Kringlunni í dag.
Þessar hressu stelpur sungu meðal annars fyrir starfsmenn Eirbergs í Kringlunni í dag. Vísir/Sigurjón

Ofurhetjur, risaeðlur og ýmsar furðuverur voru á vappi víða um land í dag. Tilefnið að sjálfsögðu sjálfur öskudagurinn sem var haldinn hátíðlegur víða um land í dag.

Líkt og aðra morgna sameinuðust nemendur Laugarnesskóla til að mynda í morgunsöng en í búningum í þetta sinn.

Þá lögðu fjölmargir leið sína í Kringluna til þess að slá köttinn úr tunnunni og syngja fyrir afgreiðslufólk í skiptum fyrir nammi. Sigurjón Ólafsson tökumaður sem var þar á ferðinni í dag fékk að heyra nokkur góð tóndæmi.

Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona kíkti svo á öskudagsball Hjálpræðishersins í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem allir voru í búning. Ræddi hún við Hjördís Kristinsdóttir svæðisforingja sem sagði frábæra stemningu á samverustund á sjálfum úlfatímanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.