Skoðun

Á­skorun til dóms­mála­ráð­herra

Ágústa Rúnarsdóttir, Gunnar Páll Júlíusson, Helgi Hlynsson og Jóhann Ágústsson skrifa

Umræða um heildarstefnu á sviði fangelsismála á Íslandi hefur verið áberandi á undanförnum vikum og mánuðum og sú aukna athygli sem málaflokkurinn hefur fengið er löngu tímabær og þörf. Í desember 2023 sendu Ríkisendurskoðun og Umboðsmaður Alþingis frá sér svartar skýrslur um stöðu fangelsismála á Íslandi og í síðustu viku sýndi RÚV umfjöllun Kveiks um fangelsið á Litla-Hrauni. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og allir hlutaðeigandi aðilar virðast sammála um að við núverandi ástand verði ekki unað, hvorki hvað varðar aðstöðu til afplánunar og árangurinn af henni né það starfsumhverfi sem fangavörðum er ætlað að vinna í.

Á Litla-Hrauni, þar sem yfir helmingur allra fangavarða á Íslandi starfar, er húsakostur rekinn á undaþágum. Til stendur að bæta vistarverur fanga á Litla-Hrauni á næstu mánuðum þar sem ekki þykir forsvaranlegt að hýsa þá við núverandi aðstæður næstu fimm árin þar til nýtt fangelsi rís. Lítið hefur hins vegar heyrst af áætlunum um að bæta vinnuaðstöðu fangavarða á Litla-Hrauni á sama tímabili.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 4. desember sl. kemur fram að engin mannauðsstefna hafi litið dagsins ljós síðan mannauðsstjóri var fyrst ráðinn til Fangelsismálastofnunar árið 2019 og að engin starfsmannasamtöl fari fram við fangaverði. Í skýrslunni kemur einnig fram að há veikindatíðni fangavarða á Litla-Hrauni sé áhyggjuefni og í viðbrögðum Fangelsismálastofnunar við drögum skýrslunnar kemur fram að fangavarðastarfinu fylgi mikið álag sem gæti að hluta til skýrt háa veikindatíðni.

Fulltrúar Fangavarðafélags Íslands, SFR (nú Sameyki) og Fangelsismálastofnunar undirrituðu stofnanasamning 15. júní 2017 og samkvæmt ákvæðum í þágildandi og núgildandi kjarasamningum skal endurskoða það samkomulag á tveggja ára fresti. Ríkisendurskoðun segir í skýrslu sinni frá 4. desember að það sé grundvallaratriði að samningsaðilar vinni í samræmi við ákvæði um endurskoðun stofnanasamnings. Þrátt fyrir þetta er núverandi stofnanasamningur fangavarða við Fangelsismálastofnun á sjöunda ári og lítið virðist þokast í samkomulagsátt.

Líklegt verður að teljast að starfsaðstaða fangavarða í stærsta öryggisfangelsi á Íslandi verði ekki lagfærð á næstu fimm árum. Þá er ljóst að andlegt og líkamlegt álag á fangaverði er mikið og engar líkur á að það fari minnkandi. Því skora trúnaðarmenn starfsmanna Litla-Hrauns á dómsmálaráðherra að greiða fyrir gerð nýs stofnanasamnings við fangaverði. Þegar ekki er hægt að tryggja embættismönnum hjá íslenska ríkinu mannsæmandi vinnuaðstöðu og álag í starfi er fast við efri mörk hlýtur það að vera eitt af forgangsmálum ráðherra dómsmála að hlutast til um kjarasamningsbundna endurskoðun stofnanasamnings með opnum huga og auknu fjármagni.

Litla-Hrauni 5. febrúar 2024,

Ágústa Rúnarsdóttir varatrúnaðarmaður

Gunnar Páll Júlíusson öryggistrúnaðarmaður

Helgi Hlynsson öryggistrúnaðarmaður

Jóhann Ágústsson trúnaðarmaður




Skoðun

Sjá meira


×