Lífið

„Ég beygði mig niður og hugsaði: Nú dey ég“

Boði Logason skrifar
Í þættinum rekur Oddný Björgólfsdóttir flugfreyja og vinkona Þuríðar, atburðarásina þessa örlagaríku nótt og vikurnar eftir slysið.
Í þættinum rekur Oddný Björgólfsdóttir flugfreyja og vinkona Þuríðar, atburðarásina þessa örlagaríku nótt og vikurnar eftir slysið. Vísir/Sara Rut

„Ég var sannfærð um að þetta væri búið. Ég beygði mig niður og hugsaði: Nú dey ég. Nú komu hræðileg högg sem sögðu mér að vélin væri að brotlenda. Hún sleikti trjátoppana.“

 Þessi orð eru höfð eftir Þuríði Vilhjálmsdóttur flugfreyju í nýjasta Útkallsþættinum á Vísi. 

Þar er fjallað um fjórða stærsta flugslys sögunnar þegar Leifur Eiríksson, DC-8 vél Loftleiða, brotlenti í myrkri og rigningu í skóginum skammt frá Colombo á Sri Lanka í nóvember árið 1978. 

Þáttinn má sjá í heild sinni í spilarnum hér fyrir neðan:

Klippa: Útkall - Flugslysið á Sri Lanka

262 voru um borð, þar af 13 Íslendingar – allt Loftleiðafólk. Fimm þeirra komust af. Verið var að flytja indónesíska pílagríma frá Mekka til heimalands síns.

Í þættinum rekur Oddný Björgólfsdóttir flugfreyja og vinkona Þuríðar, atburðarásina þessa örlagaríku nótt og vikurnar eftir slysið. 

„Ég hélt um handfangið á hurðinni og var lengst úti í móa. Ég lít upp og sé vélina í björtu báli,“ segir Oddný í þættinum. „Svo allt í einu og út úr öllu brakinu kemur Þuríður, vinkona mín hlaupandi og öskrandi: „Oddný, Oddný, hvar ertu?“ ... „Við verðum að koma okkur í burtu.“

Alla þætti Útkalls má nálgast á sjónvarpssíðu Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.