Skoðun

Á­fram Grinda­vík!

Tómas Ellert Tómasson skrifar

Við Íslendingar höfum þurft í gegnum aldir alda að eiga við all hrikalega krafta móður jarðar. Þau allra verstu á landnámstímum væntanlega móðuharðindin í kjölfar Skaftárelda, djöfulganginn í systrunum Heklu og Kötlu auk frændanna í Vatnajökli, Bárðarbungu og Öræfajökli. Á nútíma og innan mannsaldra höfum við fengið vel að kenna á kröftum móður jarðar. Um allt land, suður, vestur, austur og norður, enginn óhultur.

Persónulega fékk ég að upplifa Suðurlandsskjálftana 2000 og 2008, í langan tíma á eftir verður að viðurkennast að ég var mjög skelkaður vegna þeirrar upplifunar. Sem betur fer lenti ég ekki í neinu stór eignatjóni, en það tók mig tíma að jafna mig eftir hristinginn. Mikið eignatjón varð eftir þessa mjólkurhristinga á suðurlandi sem Viðlagatrygging greiddi tjónþolum með sem sanngjörnustum hætti út, auðvitað voru ekki allir ánægðir með sitt tjónamat. En það er bara eins og það er og venjulegast hægt að koma slíkum málum í lögformlegan farveg. Einnig fékk ég að finna harkalega fyrir gasmenguninni sem varð í kjölfar gossins í Holuhrauni 2014 búandi á Höfn í Hornafirði á þeim tíma.

Og í dag bý ég ofan á stærsta hrauni landsins sem runnið hefur á nútíma á jörðinni úr einu gosi og það gos er ættað úr Bárðarbungukerfinu. Þjórsárhrauninu mikla sem rann fyrir um 8500 árum, en það rann ofan af hálendinu skammt vestan Bárðarbungu og til sjávar milli Ölfusár og Þjórsár. Getur það gerst aftur? Veit það ekki. Ætla ég að flytja mig vegna þessa? Nei!

Til ykkar Grindvíkingar

Grindvíkingar, ég veit að ykkur líður ekki vel við þær aðstæður sem nú eru uppi þegar móðir jörð hefur tekið stjórnina og völdin af ykkur. Hef fengið að heyra í nokkrum ykkar sl. daga og mánuði, hljóðið er þungt, skiljanlega. Fáir skilja hvað á ykkur er lagt þessi misserin. Þeir fáu sem skilja, hafa lent í svipuðum aðstæðum. Þó ég fari ekki lengra aftur í tímann, en þá skilja þeir sem upplifðu Heimaeyjargosið 1973, Kröflueldana 1975-1984, Snjóflóðin á Flateyri og Súðavík, Suðurlandsskjálftana 2000 og 2008 og skriðuföllin á Seyðisfirði 2020 hvað þið eruð að ganga í gegnum þessi dægrin.

Kæru Grindvíkingar mér fannst ég knúinn til að rita þessi orð til ykkar, ekki aðeins vegna þess að ég á góða vini og félaga í ykkar hópi heldur frekar vegna þess að mér þykir vænt um ykkur sem samfélag. Ég upplýsi það hér og nú að ég hef öfundað ykkur af því kröftuga samfélagi sem þið hafið byggt upp og standið fyrir og munuð gera áfram í svo sem hvaða mynd það verður í framtíðinni. Áfram Grindavík!

Höfundur er byggingarverkfræðingur og íbúi á Selfossi.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×