Innlent

Að­stæður í Grinda­vík geti haft á­hrif á kjara­við­ræður

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bjarni segir að það verði að líta á heildarmyndina.
Bjarni segir að það verði að líta á heildarmyndina. Vísir/Sigurjón

Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, segir pakkann sem ríkisstjórn tilkynnti um í gær fyrir Grindvíkinga geta haft áhrif á kjaraviðræður. Mögulega verði ekki hægt að verða við öllum kröfum verkalýðshreyfingarinnar. 

Ríkisstjórnin kynnti í gær milljarða pakka til að bregðast við aðstæðum í Grindavík. Forsætisráðherra sagði í gær endanlega línu liggja fyrir í febrúar. Þetta sagði Bjarni í Silfrinu í ríkissjónvarpinu í gærkvöldi.

Hann sagði það áhyggjuefni ef við værum stödd í hrinu jarðhræringa sem geti haft aðrar og alvarlegar afleiðingar á hitaveitu og rafmagn. Það séu mikilvægir innviðir í húfi. 

Hann ræddi einnig kjaraviðræður þar og ákall um að yfirvöld kæmu inn í þjóðarsátt sem unnið er að með því að styrkja tilfærslukerfið. Hann sagði að verkalýðsfélögin hefði jafnvel sagt að ef ríkið kæmi ekki inn með þeim hætti yrðu engir kjarasamningar. Vandamálið væri þó að þegar ríkið, sem hann sagði okkur öll, þyrfti að stíga inn í verkefni eins og Grindavík væri svigrúmið minna.

„Það auðvitað hefur áhrif á getu okkar til að teygja okkur í átt að kröfum annarra sem á sama tíma eru að biðja okkur að leggja eitthvað af mörkum.“

Spurður hvort að aðstæður í Grindavík myndu hafa þá bein áhrif á kjaraviðræður sagði Bjarni nauðsynlegt fyrir alla að líta á heildarmyndina og það væri óskynsamlegt „af öllum aðilum að ætlast til þess að þeir séu teknir út úr því stóra samhengi sem við öll erum í.“

Bjarni ræddi einnig færslur sínar á Facebook-um tjaldbúðir flóttamanna og það hvort að hann hefði verið að slá nýjan tón í umræðum um útlendingamál. Hægt er að horfa á viðtalið hér á vef RÚV.


Tengdar fréttir

Bjarni hellir sér yfir Semu

Utanríkisráðherra segir ásakanir Semu Erlu Serdaroglu, aðjúnkts við Háskóla Íslands og stofnanda Solaris, um að hann hefði uppi óhróður um hóp fólks og væri í reynd að hvetja til andúðar og ofbeldis, fráleitar og dæma sig sjálfar. Þá segir hann skemmdarverk hafa verið unnin á utanríkisráðuneytinu í morgun.

Kæra hatur­s­orð­ræðu í garð flótta­fólks til lög­reglu

Stjórn hjálparsamtakanna Solaris fordæmir í yfirlýsingu orðræðu valdhafa sem ýtir undir hatur og ofbeldi í garð flóttafólks. Samtökunum hafa á fyrstu vikum ársins borist hátt í tuttugu tilkynningar um hatursorðræðu í garð flóttafólks. 

„Bjarni hefur aldrei gengið svona langt í rasisma“

Færsla Bjarna Benediktssonar, þar sem hann gagnrýnir tjaldbúðir mótmælenda við Austurvöll, hefur vakið mikil og hörð viðbrögð. Margir gagnrýna ummæli Bjarna sem þó hafa einnig hlotið nokkurn meðbyr. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×