Erlent

Byssu­menn réðust inn í beina út­sendingu og hótuðu sprengju­á­rás

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Byssumennirnir tóku starfsfólk í gíslingu og sögðust hafa sprengjur í fórum sínum. 
Byssumennirnir tóku starfsfólk í gíslingu og sögðust hafa sprengjur í fórum sínum.  Skjáskot/X

Hópur manna vopnuðum skotvopnum brutust inn í sjónvarpssett hjá ekvadorska miðlinum TC í borginni Guayaquil fyrr í kvöld meðan á beinni útsendingu stóð. 

Myndefni af atburðinum sýnir hóp grímuklæddra manna ráðast inn í myndver og hóta þáttastjórnendum með byssum í skamma stund áður en útsending var rofin.

Öllum starfsmönnum fjölmiðilsins var gert að rýma bygginguna en engum virðist hafa verið meint af. Síðar voru nokkrir menn handteknir grunaðir um aðild að innbrotinu. 

Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan. 

Daniel Noboa forseti Ekvador lýsti í gær yfir sextíu daga neyðarástandi eftir að alræmdur leiðtogi glæpagengis strauk úr fangelsi. Nærri fjörutíu aðrir fangar struku úr fangelsi í borginni Riobamba snemma í morgun. Þar á meðal er þekktur eiturlyfjabarón.

Frá því að neyðarástandi var lýst yfir hefur að minnsta kosti sjö lögreglumönnum verið rænt af meðlimum téðra glæpasamtaka. Ekki er vitað hvort strokufangarnir tengist innbrotinu í útsendinguna en atvikið er sagt vera skýrt dæmi um sífellt versnandi öryggisgæslu í landinu. 

Lögregludeildir í borgunum Quito og Guayaquil voru kallaðar út. AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×