Innlent

Missti hálfa fjöl­skylduna í loft­á­rás en er nú mætt til Ís­lands

Bjarki Sigurðsson skrifar
Asil Al Masri er komin til Íslands.
Asil Al Masri er komin til Íslands. Vísir/Arnar

Sautján ára stelpa sem kom hingað til lands frá Palestínu í dag segist himinlifandi og hlakkar til að læra tungumálið. Hluti fjölskyldu hennar lét lífið í sprengjuárás Ísraela fyrir þremur mánuðum. Sjálf missti hún fót í árásinni.

Hin sautján ára Asil Al Masri er komin til Íslands eftir að hafa verið veittur íslenskur ríkisborgararéttur.

Hún er frá Palestínu og missti næstum því alla fjölskyldu sína í loftárás Ísraelshers í október á síðasta ári. Báðir foreldrar hennar létust sem og systir hennar. Asil komst af á lífi ásamt tveimur yngri frændsystkinum sínum sem dvelja nú í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Sjálf missti Asil vinstri fótinn í árásinni.

Asil er ein þeirra tuttugu sem Alþingi veitti ríkisborgararétt viku fyrir jól. Suleiman, bróðir hennar, hafði barist fyrir komu hennar um nokkurt skeið. Hann hefur sjálfur á Íslandi síðan árið 2020 en hann flúði Palestínu árið 2017. Systkinin höfðu ekki séð hvort annað í sex ár þegar hann sótti Asil í Belgíu.

„Hún var svo lítil áður en nú er hún ung stúlka. Ég er svo glaður. Sex ár eru liðin. Allt er gott núna. Við erum svo heppin að fá Asil hingað til Íslands og við erum þakklát íslensku þjóðinni,“ segir Suleiman.

Asil segist vera himinlifandi að vera komin til Íslands. Síðustu mánuðir hafi reynst henni afar erfiðir.

„Ég er himinlifandi. Ég er afar þakklát öllu fólkinu sem hjálpaði mér að komast hingað og við að öðlast ríkisborgararéttinn. Ég þakka öllu fólkinu sem sagði sögu mína um allt Ísland,“ segir Asil.

Hún hlakkar mest til þess að læra íslensku.

„Ég ætla að læra tungumálið og vera í tengslum við samfélagið hér því ég mun eignast marga vini. Ég ætla að halda áfram í læknismeðferðinni, fara í skóla og halda áfram menntun minni. Síðan vonast ég til að fá framtíðarstarf,“ segir Asil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×