Erlent

Hryðju­verka­sam­tök lýsa yfir á­byrgð á á­rásinni í Íran

Lovísa Arnardóttir skrifar
Eyðileggingin var mikil í kjölfar sprengingarinnar. Alls létust 84 í árásinni.
Eyðileggingin var mikil í kjölfar sprengingarinnar. Alls létust 84 í árásinni. Vísir/EPA

Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við Íslamska ríkið, ISIS, hafa lýst ábyrgð á sprengjuárásinni í Kerman í Íran í gær. 

Frá þessu er greint á erlendum miðlum en alls voru 84 myrt í árásinni sem átti sér stað á sama stað og minningarathöfn vegna hershöfðingjans Qassim Suleimani fór fram.

Suleimani lést í drónaárás Bandaríkjahers fyrir fjórum árum síðan. Írönsk stjórnvöld lýstu yfir þjóðarsorg í landinu í dag og hétu hefnda.

Á vef breska ríkisútvarpsins segir að ISIS hafi lýst yfir ábyrgð á árásinni á stöð sinni á samskiptamiðlinum Telegram. Hópurinn hafi svo birt mynd af tveimur mönnum á fréttasíðu sinni sem hafi sagst ábyrgir fyrir árásinni. 

Í frétt þeirra kom fram að fyrsta sprengjan hafi verið sprengd í hópi fólks og sú seinni tuttugu mínútum seinna. Mennirnir eru nafngreindir í frétt ISIS en á vef BBC segir að um sé að ræða algeng nöfn og ekki sé hægt að greina út frá þeim hvort mennirnir hafi verið frá Íran eða erlendir ríkisborgarar.


Tengdar fréttir

Blinken á leið til Ísrael

Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna er væntanlegur til Ísraels í kvöld í óvænta heimsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×