Skoðun

Ó­dýr og örugg orka til heimila kemur orkuskorti ekkert við

Björg Eva Erlendsdóttir skrifar

Stórnotendur raforku koma nú fram í fjölmiðlum og mótmæla nauðsynlegu frumvarpi um forgang heimilanna að öruggri raforku á hóflegu verði. Tala um afturför, miðstýringu, brot á samkeppnislögum og neyðarástand vegna orkuskorts. Þessi orkufreku fyrirtæki eru á móti því að tryggja heimilum og litlum fyrirtækjum brot af allri raforkunni af sameiginlegri orkuauðlind í eigu þjóðarinnar. Stórnotendur nýta nú 85 prósent orkunnar. Það er mikið álag á náttúruna. Heimilin nota fimm prósent. Þessar kvartanir hafa ekkert með skort að gera. Það er verið að kalla eftir meðvitaðri ákvörðun um að selja hæstbjóðanda alla raforkuna okkar, alltaf. Við þetta á ekki að una og við þetta geta ekki aðrir en stórnotendur keppt. Náttúran má sín einskis í þessum aðstæðum frekar en fólkið í landinu.

Aðgangur að raforku og heitu vatni á sanngjörnu verði er ennþá grundvöllur velsældar okkar og hann ætti að tryggja um ókomna tíð. Því sannarlega er eftirspurnin endalaus. Orkuöryggi heimila og lítilla fyrirtækja gæti horfið á örskotsstundu nái sjónarmið stórnotenda fram að ganga. Um það eru slæm dæmi í nágrannalöndum, til dæmis Noregi þar sem orkuverð til heimilanna sveiflast upp í hæstu hæðir, eftir lögmálum markaðarins, þótt orkuframleiðsla sé gríðarleg. Þetta getur líka gerst hér.

Samtökin og fyrirtækin sem mótmæla nú frumvarpi til laga um raforkuöryggi heimila eru Alcoa Fjarðarál, Norðurál, Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins, Samál, Samtök iðnaðarins, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, HS orka, Veitur og Orka náttúrunnar. Með því að leggjast gegn orkuöryggi heimilanna setja þau eigin hagnað ofar almannahagsmunum. Landvernd tekur heilshugar undir með forstjóra Landsvirkjunar sem segir að í litlu og lokuðu raforkukerfi, eins og á Íslandi, virki markaðslögmál ekki vel. Þegar skortur sé á orku geti verðið margfaldast.

Bráðnauðsynlegt frumvarp orku, umhverfis og auðlindaráðherra, sem tryggir heimilum raforku á hóflegu verði ætti að vera óumdeilt og það kemur orkuskorti ekkert við, þótt ýmsir þingmenn velji að tengja það við meint „neyðarástand“ gagnavera og stóriðju. Lög um trygga og ódýra orku til heimilanna eiga ekki að vera tímabundin, heldur varanleg. Hvernig sem árar í orkumálum landsins, að mati þeirra sem vilja setja bæði fólkið í landinu og náttúruna sjálfa á markaðstorg stórnotenda.

Íslendingar lifa ekki við hagstætt veðurfar, en hér er gott að búa við öruggan hita og rafmagn, þótt kaldir vindar næði. Orkan er sameign þjóðarinnar sem á að nýtast varlega í þágu þjóðar og náttúru. Raforkukostnaður er engu að síður stór liður í útgjöldum margra heimila í landinu og ekki er þar á bætandi. Stjórnvöldum ber að standa vörð um náttúru og almenning og forgangsraða í þágu almennings, orkuskipta og starfsemi sem ekki ryksugar upp alla orku sem mögulegt er að framleiða í landinu.

Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×