Flatey færir út kvíarnar og kaupir ísbúðir Árni Sæberg skrifar 7. desember 2023 17:09 Hluti starfsfólks og eigenda Gaeta og Flateyjar. Nú um mánaðarmótin tók félagið á bakvið Flatey pítsustaðina við rekstri ísbúða Gaeta Gelato, en Gaeta framleiðir ítalskan gelató-ís frá grunni úr hráefni frá Ítalíu og íslenskri mjólk.
Gaeta var stofnað vorið 2020 af Bolognabúanum Michele Gaeta í samstarfi við vinafólk sem rekur gelatóbúðir þar í borg og hefur gert allt frá árinu 1991. Fyrsta ísbúðin og sú stærsta er á Aðalstræti 6 við Ingólfstorg en einnig má finna Gaeta í mathöllunum á Hlemmi og Höfða. Í búðunum má finna 24 tegundir af gelató hverju sinni, auk ýmissa kræsinga af ítölskum uppruna á borð við tiramisú, cannoli og babá. „Þetta er mjög spennandi. Við höfum verið landsins mestu aðdáendur Gaeta undanfarin ár enda vandfundinn ís af þessum kalíber hér á landi. Gelatóinn hefur verið boði á Flatey veitingastöðunum undanfarið og hefur sótt í sig veðrið hægt og bítandi, rétt eins og ísbúðirnar sjálfar,“ segir Haukur Már Gestsson einn af eigendum Flatey Pizza. Flatey Pizza var stofnað 2017 með opnun veitingastaðarins á Grandagarði, en Flatey býður upp á súrdeigspítsur í þeim stíl sem kenndur er við Napólíborg. Staðirnir eru nú fimm talsins auk systurstaðarins NEÓ á Hafnartorgi sem reiðir fram svokallaðar New York-Napólí pítsur. Flýta sér hægt Að sögn Hauks stendur ekki til að breyta miklu í bráð enda varan „hérumbil fullkomin og handbragð Michele og kollega í heimsklassa“. Hins vegar standi til að fjölga ísbúðum hægt og bítandi og efla úrvalið frá Gaeta í matvöruverslunum. „Fyrst og fremst viljum við halda áfram að breiða út fagnaðarerindið um alvöru ítalskan gelató eins og Michele hefur gert af kappi undanfarin ár. Michele hefur lagt líf og sál í ísgerðina sem á sér dygga fastakúnna en það má alveg örugglega fjölga þeim. Það væri gaman að auka úrvalið í verslunum og opna ef til vill eina eða tvær gelató-búðir til viðbótar á vel völdum stöðum á komandi misserum. Við sjáum hvað setur og flýtum okkur hægt.“ Fer aftur heim til Ítalíu Að sögn Michele fæddist ævintýri hans í ísbransanum hér á landi fljótlega eftir komuna, þegar kræla fór á söknuði hjá honum eftir ósviknum gelató eins þeim og finna má á götum Bologna. Hann lítur stoltur yfir farinn veg en telur nú vera kominn tími til að flytja aftur heim til Ítalíu. „Ég flutti til Íslands árið 2019, heillaðist af landi og þjóð og ákvað að ílengjast. Innan skamms fann ég til æpandi söknuðar eftir gelató eins og þú færð í Bologna. Gelato-ís hefur silkikenndari og mýkri áferð en hefðbundinn rjómaís ásamt því að vera þéttari í sér vegna þess hvernig hann er framleiddur. Eitt leiddi af öðru og í samstarfi við vinafólk frá Bologna opnuðum við búðina við Aðalstræti ári síðar og hófum ísframleiðslu þar, en þau hafa framleitt og selt gelató þar í borg í meira en 30 ár.“ Undanfarið hafi hann þó fundið að hann langaði að flytja aftur heim til Ítalíu og valið hafi í raun staðið á milli þess að reka fyrirtækið í fjarvinnu þaðan eða selja það öðrum sem gætu haldið vegferðinni áfram. „Ég kannaðist við Flatey teymið í gegnum sambýlið á Hlemmi mathöll og viðskipti með gelató fyrir veitingastaðina. Samtal okkar þróaðist smátt og smátt en á tiltölulega skömmum tíma varð þetta niðurstaðan. Ég er sannfærður um að Gaeta muni blómstra í höndum nýja teymisins“ segir Michele.
Ís Matur Veitingastaðir Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið „Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ Atvinnulíf Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Viðskipti innlent Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Viðskipti innlent Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Atvinnulíf Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Viðskipti innlent Úr boltanum í tryggingarnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Sjá meira