Breyttu nafninu til að vera sem minnst spurð út í það Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 25. nóvember 2023 17:01 ex.girls voru að senda frá sér plötuna Verk. Margrét Unnur Guðmundsdóttir Íslenska hljómsveitin ex.girls var að senda frá sér breiðskífuna Verk. Lagið 90 oktan af plötunni var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.
Hljómsveitin ex.girls er skipuð þeim Guðlaugi Hörðdal, Tatjönu Dís Aldísar og Gylfa Sigurðssyni. Platan „Verk“ er fyrsta breiðskífa þeirra og er gefin út af þýsk-íslenska plötufyrirtækinu bbbbbb records sem rekið er af teknórisanum Bjarka. Þetta er önnur útgáfa hljómsveitarinnar hjá því plötufyrirtæki. „Viðfangsefni plötunnar fjallar fyrst og fremst um merkingu þess að vera manneskja. Textinn spyr út í það, gerir grín að því, streitist á móti því og sættir sig við það,“ segja meðlimir sveitarinnar. ex.girls Margrét Unnur Platan var unnin í samstarfi við tónlistarmanninn Guðmund Ara Arnalds en hann co-produce-aði hana. Plötuumslag gerði Viktor Weisshappel Vilhjálmsson og Thomas Harrington Rawle. Það vakti eflaust athygli aðdáenda sveitarinnar að hún breytti um nafn fyrir útgáfuna en áður hét sveitin russian.girls. Aðspurð um nafnabreytinguna segja hljómsveitarmeðlimir einfaldlega að þau hafi breytt nafninu til að vera spurð sem minnst út í það. Það er ýmislegt spennandi á döfinni hjá ex.girls sem koma meðal annars fram í partýi í Kolaportinu þann 16. desember næstkomandi. „Við ætlum að halda útgáfutónleika fljótlega eftir áramót og svo erum við að setja saman breiðskífu númer tvö sem við unnum í samstarfi við tónlistarmanninn In3dee.“ Hér má hlusta á plötuna á streymisveitunni Spotify. Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957. Lög Íslenska listans: Íslenski listinn á Spotify:
Íslenski listinn Tónlist FM957 Tónleikar á Íslandi Mest lesið Sex ára þegar hann var fyrst frelsissviptur Lífið Háleit markmið Katrínar: Sparar í mat og greiðir 10 milljónir inn á húsnæðislánið Lífið Fimm heillandi heimili í höfuðborginni Lífið „Fyrir mér snýst þetta ekki bara um að sækjast eftir kórónu“ Lífið Ungir Framsóknarmenn safna fyrir neyðarsjóð Ragnars Þórs Lífið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Segir gott að elska Ara Lífið Fáðu að vita strax hvort þú hafir efni á draumaeigninni Lífið samstarf „Ég hef gert mig þannig tilbúna fyrir þetta að ég eigi titilinn skilið“ Lífið Innlit á Bessastaði Lífið Fleiri fréttir Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira