Tónlist

Breyttu nafninu til að vera sem minnst spurð út í það

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
ex.girls voru að senda frá sér plötuna Verk.
ex.girls voru að senda frá sér plötuna Verk. Margrét Unnur Guðmundsdóttir

Íslenska hljómsveitin ex.girls var að senda frá sér breiðskífuna Verk. Lagið 90 oktan af plötunni var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag. 

Hljómsveitin ex.girls er skipuð þeim Guðlaugi Hörðdal, Tatjönu Dís Aldísar og Gylfa Sigurðssyni. Platan „Verk“ er fyrsta breiðskífa þeirra og er gefin út af þýsk-íslenska plötufyrirtækinu bbbbbb records sem rekið er af teknórisanum Bjarka. Þetta er önnur útgáfa hljómsveitarinnar hjá því plötufyrirtæki.

„Viðfangsefni plötunnar fjallar fyrst og fremst um merkingu þess að vera manneskja. Textinn spyr út í það, gerir grín að því, streitist á móti því og sættir sig við það,“ segja meðlimir sveitarinnar. 

ex.girls Margrét Unnur

Platan var unnin í samstarfi við tónlistarmanninn Guðmund Ara Arnalds en hann co-produce-aði hana. Plötuumslag gerði Viktor Weisshappel Vilhjálmsson og Thomas Harrington Rawle.

Það vakti eflaust athygli aðdáenda sveitarinnar að hún breytti um nafn fyrir útgáfuna en áður hét sveitin russian.girls. Aðspurð um nafnabreytinguna segja hljómsveitarmeðlimir einfaldlega að þau hafi breytt nafninu til að vera spurð sem minnst út í það. 

Það er ýmislegt spennandi á döfinni hjá ex.girls sem koma meðal annars fram í partýi í Kolaportinu þann 16. desember næstkomandi. 

„Við ætlum að halda útgáfutónleika fljótlega eftir áramót og svo erum við að setja saman breiðskífu númer tvö sem við unnum í samstarfi við tónlistarmanninn In3dee.“

Hér má hlusta á plötuna á streymisveitunni Spotify

Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00 á FM957.

Lög Íslenska listans:

Íslenski listinn á Spotify:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.