Innlent

Vont veður gæti gert stað­festingu á eld­gosi erfiða

Jón Þór Stefánsson skrifar
Þoka og dimm él geta orðið til þess að erfitt sé að staðfesta eldgos í gegnum myndavél.
Þoka og dimm él geta orðið til þess að erfitt sé að staðfesta eldgos í gegnum myndavél. Vefmyndavél Vísis

Erfiðar veðuraðstæður verða til þess að vöktun á Reykjanesskaganum með jarðhræringum og mögulegu eldgosi skerðist. Meðal annars sér þoka og dimm él til þess að erfiðara væri að fá sjónræna staðfestingu á gosi með myndavélum.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í stöðuuppfærslu Veðurstofunnar á jarðhræringunum á Reykjanesskaga. 

„Skilvirkni þessarar vöktunar veltur á góðri næmni jarðskjálfta- og rauntíma GPS mælinga en næmnin er mjög háð veðuraðstæðum. Í ljósi þess að veðurspá næstu tveggja daga bendir til úrkomu og talsverðs vinds má gera ráð fyrir að bæði næmni jarðskjálfta- og rauntíma GPS vöktunar Veðurstofunnar skerðist. Brim hefur áhrif á lágu tíðnina í óróamælingunum þar sem öldur koma fram sem órói. Þoka og dimm él hafa síðan áhrif á sjónræna staðfestingu á gosi með myndavélum.“ segir í tilkynningunni.

Land heldur áfram að rísa við Svartsengi og hraði risins hefur haldist óbreyttur síðasta sólarhringinn. Fram kemur einnig fram að áfram hægi á aflögun í og við kvikuganginn sem myndaðist tíunda nóvember.

Frá miðnætti í dag hafa 165 jarðskjálftar, sem allir eru undir tveimur að stærð, mælst við kvikuganginn. Það er nokkuð minna en síðustu daga en þá hafa mælst um 1500 til 1800 skjálftar á sólarhring. Veðurstofan tekur fram að gera megi ráð fyrir að hvassviðri sem nú gengur yfir landið hafi haft áhrif á næmni kerfisins til að finna minnstu skjálftana. Þar af leiðandi er erfitt að meta hvort að dregið hafi úr skjálftavirkni að stöddu.

Þá er minnst á að Veðurstofan hafi aukið á vöktun í og við Grindavík, sem og á svæðinu umhverfis Hagafell á meðan íbúar nálgast eigur sínar og verðmæti og verktakar vinna við varnargarða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×