Innlent

Fundar með utan­ríkis­ráð­herrum araba­ríkja um vopna­hlé

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun funda um stöðuna á Gasa með utanríkisráðherrum nokkurra arabaríkja í dag.
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun funda um stöðuna á Gasa með utanríkisráðherrum nokkurra arabaríkja í dag. AP

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun funda um stöðuna á Gasa með utanríkisráðherrum nokkurra arabaríkja í dag. Íslandsdeild Amnesty International krefst þess að forsætis- og utanríkisráðherra leggi sitt af mörkum við að koma á vopnahléi.

Búast má við að kröfur um vopnahlé af mannúðarástæðum verði umræðuefni funda sem Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun eiga með utanríkisráðherrum nokkurra arabaríkja í dag.

Blinken lagði áherslu á nauðsyn vopnahlés af mannúðarástæðum á fundi með forsætisráðherra Ísrael í gær . Forsætisráðherrann sagði að slíkt hlé kæmi ekki til greina nema öllum þeim 240 gíslum sem Hamas liðar eru með í haldi verði sleppt. Þangað til verði hernaði Ísrael halið áfram af fullum þunga.

Vopnahlé nauðsynlegt

Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeilar Amnesty International, segir vopnahlé gríðarlega mikilvægt.

„Til þess að stöðva þessar ólögmætir árásir allra aðila sem eiga sér stað í þessum átökum. Vopnahlé fækkar dauðsföllum og gerir hjálparstofnunum það kleift að veita lífsnauðsynlega aðstoð. Hlé er svakalega mikilvægt tæki og tækifæri til að tryggja að mannréttindi séu virt á þessu svæði.“

Vopnahlé sé ekki síður mikilvægt til að semja um lausn þeirra gísla sem í haldi eru. Íslandsdeildin afhenti Bjarna Benediktssyni utanríkisráðherra og forsætisráðuneytinu undirskriftalista í gær með tæplega sjö þúsund undirskriftum.

„Það sýnir hvað fólki hér á landi er annt um þennan málstað að tryggja mannréttindi og mannúð á þessu svæði, allra aðila. Og við höfum sjaldan eða jafnvel aldrei fengið jafn margar undirskriftir í máli sem deildin hefur tekið upp.“

Vonbrigði

Anna segir það hafa verið vonbrigði þegar íslensk stjórnvöld sátu hjá í atkvæðagreiðslu Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gaza. Þau hefðu viljað sjá Ísland kjósa með ályktuninni.

„Og sýna þannig sterkan vilja og senda sterka yfirlýsingu til alþjóðasamfélagsins um að Ísland vilji setja mannúð og mannréttindi á oddinn, algjörlega. Þá hefði Ísland frekar getað gert í sinni greinargerð, grein fyrir því að þau hefðu viljað sjá frekari og nákvæmari útlistingu á þeim hópum sem þarna takast á eða fara nánar út í þau atriði sem þau hefðu viljað sjá í yfirlýsingunni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×