Innlent

Sprengisandur: Bændur, Gasa og gamlar syndir séra Friðriks

Samúel Karl Ólason skrifar
Sprengisandur hefst klukkan 10. Kristján Kristjánsson stýrir þættinum að venju.
Sprengisandur hefst klukkan 10. Kristján Kristjánsson stýrir þættinum að venju.

Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.

Að þessu sinni fær Kristján til sín gesti og ræðir við þau um húsnæðismarkað, stöðu bænda, afstöðu íslenskra stjórnalda til átakanna á Gasaströndinni og séra Friðrik og meintar syndir hans.

Jón Ólafur Ólafsson verðu fyrsti gestur Kristjáns en þeir ætla að tala um gagnrýni á nútímaarkitektúr og um hætturnar sem felast í of hraðri uppbyggingu á húsnæðismarkaði.

Svo mæta þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fyrrverandi landbúnaðarráðherra og Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi til 30 ára og núverandi alþingismaður. Umræðuefnið er hrikaleg staða bænda sem virðast upp til hópa vera að sligast undan vöxtum og eiga ekki fyrir launum eins og glöggt kom fram hjá framkvæmdastjóra Bændasamtakanna fyrir viku.

Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður VG, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata og Diljá Mist Einarsdóttir, formaður Utanríkismálanefndar munu því næst mæta og ræða afstöðu íslenskra stjórnvalda til árásanna á Gasaströndinni, sem hefur vakið undrun marga og sérstaklega eftir að Ísland sat hjá við atkvæðagreiðslu í Sameinuðu þjóðunum þar sem óskað var eftir vopnahlé.

Í lok þáttar mætir Óttar Guðmundsson, geðlæknir og rithöfundur, til Kristjáns. Umræðuefnið er sr. Friðrik og meintar syndir hans sem margir segjast nú kannast við og þá ekki síður það samfélag sem samþykkir þessar sömu syndir. Þeir munu ræða það hvernig nútíminn eigi að bregðast við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×