Neytendur

Fagnar ívilnunum sem verði brátt barn síns tíma

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rafmagnsbílar eru vinsælastir þegar kemur að kaupum nýrra bíla hér á landi.
Rafmagnsbílar eru vinsælastir þegar kemur að kaupum nýrra bíla hér á landi. vísir/vilhelm

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, fagnar ívilnunum sem veita á einstaklingum og fyrirtækjum vegna kaupa á rafbílum og öðrum orkuhlutlausum bifreiðum frá og með áramótum. Slíkar ívilnanir verði þó brátt barn síns tíma.

Morgunblaðið fjallaði um málið í gær og sagðist hafa heimildir fyrir því að styrkurinn yrði allt að 900 þúsund krónur á hvern bíl í fjölskyldubílaflokki. Ekki væri gert ráð fyrir þaki á fjölda umsókna en bílarnir mættu ekki kosta meira en tíu milljónir.

„Nokkr­ir flokk­ar verða í boði og það verða jafn­framt veitt­ir styrk­ir við kaup á at­vinnu­tækj­um. Það verða mis­mun­andi upp­hæðir í boði eft­ir gerð bíls, eft­ir því hvort sótt er um styrk við kaup á fjöl­skyldu­bíl eða sendi­bíl. Það verður fyrst og fremst um þessa tvo flokka að ræða. Síðan verður styrk­ur­inn af­greidd­ur á þann banka­reikn­ing sem viðkom­andi eig­andi hef­ur gefið upp á skatt­skýrsl­um. Um­sókn­in verður svo greidd sam­dæg­urs eða inn­an tveggja daga,“ sagði Ragn­ar K. Ásmundsson, sem fer með málefni Orkusjóðs hjá Orkustofnun.

Í lok árs fellur virðisaukaskattsívilnun vegna kaupa á rafbílum úr gildi. Felldur hefur verið niður virðisaukaskattur við kaup á rafbílum undir 5,5 milljónum króna.

Runólfur Ágústsson er framkvæmdastjóri FÍB.Vísir/arnar

„Auðvitað eru áhyggjur manna af þessari skattlagningu á rafbíla sem er fyrirhuguð um næstu áramót að það hafi áhrif á orkuskiptaáform stjórnvalda í samgöngum í landinu,“ segir Runólfur.

Hann fagnar tillögum Orkusjóðs sem séu hugsaðar sem hvati.

„Ég tel jákvætt að það sé einhver ívilnun. En hver útfærslan nákvæmlega verður, verður bara að koma í ljós.“

Hann telur styttast í að ívilnanir fyrir rafbíla verði brátt barn síns tíma. Hlutfall rafmagnsbíla hefur verið hæst hvað varðar heildarsölu bíla það sem af er ári, samkvæmt tölum Bílgreinasambandsins. 

Hlutfall rafmagnsbíla er hæst þegar við skoðum heildarsölu eftir orkugjöfum það sem af er ári eða 42,1%. Hybrid koma þar á eftir með 19,5% af sölunni, dísel 15,2%, bensín 12,3%, og tengiltvinn 10,9% sem hlutfall sölunnar. Einnig hafa tveir metan, einn vetnis og einn með skráð óþekktan orkugjafa verið seldir á árinu.

„Til lengri tíma held ég að þessi ívilnunarhvati þurfi ekki að vera nema til skamms tíma, eitt til þrjú ár. Þetta er að verða fjöldaframleiðsluvara og er í mörgum tilfellum búin að ná verði á hefðbundnum brunahreyfilsbíl.“


Tengdar fréttir

Fagnar gjaldinu en hefur áhyggjur af hnignandi rafbílaeftirspurn

Framkvæmdastjóri FÍB, Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segist fagna áformum fjármálaráðherra um kílómetragjald rafmagns- og vetnisbíla en að þau hefðu mátt vera betur útfærð. Þá segist hann hafa áhyggjur af því að gjaldið gæti komið niður á áhuga landsmanna á rafmagnsbílum. 

Sex krónu kíló­metra­gjaldi komið á um næstu ára­mót

Áform fjármálaráðherra um frumvarp um kílómetragjald á bílanotkun gerir ráð fyrir að sex krónu kílómetragjaldi verði komið á rafmagns- og vetnisbíla á næsta ári. Þannig sé áætlað að eigandi rafmagnsbíls sem ekur sömu vegalengd muni greiða sama gjald fyrir afnot af vegakerfinu og sá sem ekur bensínbíl. Tengiltvinnbílar munu hins vegar greiða tveggja krónu kílómetragjald á næsta ári. Kílómetragjald á bensín- og díselbíla verður komið á í ársbyrjun 2025.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×