Glæpasaga Ragnheiðar hlaut Svartfuglinn Atli Ísleifsson skrifar 24. október 2023 14:39 Yrsa Sigurðardóttir, Ragnar Jónasson og Ragnheiður Jónsdóttir fyrr í dag. Aðsend Ragnheiður Jónsdóttir hlaut fyrr í dag glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir bók sína Blóðmjólk.
Í tilkynningu segir að tólf handrit hafi verið send inn í keppnina að þessu sinni og á endanum hafi eitt staðið upp úr að öllu leyti. „Í Blóðmjólk fer höfundurinn ekki troðnar slóðir í ritun glæpasagna, allar meginpersónur bókarinnar eru konur og sagan gerist í heimi kvenna. Í umsögn dómnefndar segir m.a.: „Sjónarhornið flakkar á milli kvennanna, þannig að lesandinn kynnist persónunum frá ýmsum hliðum. Hann áttar sig þó fljótt á því að ekki er allt sem sýnist. Sögunni vindur hugvitsamlega fram; var framinn glæpur og ef svo er, hver er hinn seki og hvað átti sér stað?“ Verðlaunahöfundurinn Ragnheiður Jónsdóttir er fædd 1989. Hún stundaði listnám í Gautaborg, hóf síðan nám í íslensku við Háskóla íslands og lauk meistarapófi þaðan. Blóðmjólk er fyrsta skáldsaga hennar. Að Svartfuglsverðlaununum standa glæpasagnahöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson, ásamt útgefanda sínum, Veröld. Þau eru veitthöfundi að undangenginni samkeppni þar sem nafnleyndar er gætt, en skilyrðið er að viðkomandi hafi ekki sent frá sér glæpasögu áður. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk hefðbundinna höfundarlauna samkvæmt rammasamningi Félags íslenskra bókaútgefenda og Rithöfundasambands Íslands. Einnig býðst þeim sem sigur ber úr býtum samningur við umboðsmanninn David H. Headley en tímaritið Bookseller útnefndi hann sem einn af 100 áhrifamestu mönnum breskrar bókaútgáfu. Yrsa og Ragnar skipuðu dómnefndina ásamt Bjarna Þorsteinssyni, útgáfustjóra Veraldar. Fyrst til að hljóta verðlaunin var Eva Björg Ægisdóttir en bækur hennar koma núna út á um 20 tungumálum um allan heim,“ segir í tilkynningunni.
Bókmenntir Bókaútgáfa Mest lesið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Júlía Margrét gengin út Lífið Fannst eins og hann væri eini fulli í brekkunni fyrir hádegi Lífið Götutíska fyrir íslenskar aðstæður Lífið Helvítis kokkurinn: Gómsætar grillaðar lambakótelettur Lífið Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Tónlist Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira