Innlent

Bein út­sending: Kvennaverkfall á Arnarhóli

Boði Logason skrifar
Svona var umhorfs á Arnarhóli um klukkan 13:50.
Svona var umhorfs á Arnarhóli um klukkan 13:50. vísir/vilhelm

Vísir verður með beina útsendingu frá Arnarhóli í dag. Búist er við að tugþúsundir kvenna og kvára komi saman til að styðja verkfallið. 

Skipulögð dagskrá fer fram um land allt í dag og hefur Vísir fylgst með gangi mála í morgun. 

Kvennafrídagurinn var fyrst haldinn á Íslandi þann 24. október 1975, til að mótmæla margvíslegri mismunun gegn konum á vinnumarkaðnum og vekja athygli á framlagi kvenna til samfélagsins. 

Kvennafrídagurinn hefur verið endurtekinn fimm sinnum: 1985, 2005, 2010, 2016 og 2018.

Beina útsendingu má nálgast í spilaranum hér að neðan:

Vaktin er líka á sínum stað hér fyrir neðan. Ef hún birtist ekki þá er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×