Skoðun

Helförin á Gaza

Ástþór Magnússon skrifar

Ísrael samtímans með leiðtoga er réttlæta fjöldamorð með því að kalla annað fólk „dýr“ er ekki eitthvað sem íslenska þjóðin getur sýnt stuðning við. Fyrrum utanríkisráðherrann okkar, ung móðir sem í fljótfærni gaf út opinbera yfirlýsingu með blindum stuðningi við Ísrael í kjölfar hræðilegra árása Hamas-andspyrnunar, hefur nú nokkrum dögum síðar yfirgefið utanríkisráðuneytið.

Fyrra klúður þessa yngsta utanríkisráðherra Íslands er hún uppá eigin spýtur lokaði Íslenska sendiráðinu í Moskvu fyrir nokkrum mánuðum, átti líklegast einnig þátt í að hún var flutt úr utanríkisráðuneytinu.

Það er skiljanlegt að ungt fólk sýni fljótfærnisleg viðbrögð þegar þau horfa úr fjarska uppá miskunnarlaus dráp á saklausu fólki. Andspyrna ungs fólks sem fætt er inní kúgun og umkringt fangelsismúrum og sér fyrir sig enga framtíð aðra en hægan og sársaukafullan dauða er einnig óumflýjanleg. Örvæntingarfullar og hrottalegar aðgerðir þeirra veitir okkur ekki rétt til að refsa fjölskyldumeðlimum þeirra, ungabörnum eða styðja þjóðarmorð.

Þetta er ekki ágreiningur um trúarbrögð. Þetta eru ekki einu sinni flókin átök. Þau stjórnast af græðgi sem stríðir gegn öllum meginreglum friðsæls lífs og er á engan hátt í samræmi við gyðingdóm. Rabbínar og almennir borgarar frá öllum stigum þjóðfélagsins og trúarbrögðum hafa undanfarna daga flykkt liði á torgum um alla heimsbyggðina til að fordæma öll morðin svo og andstyggð á þeim fjöldamorðum sem ríkisstjórn Ísrael fremur nú daglega á Gaza.

Það er á ábyrgð samfélags þjóðanna og leiðtoga okkar að krefjast ekki aðeins tafarlaust vopnahlés, einnig þess að öll landamæri að Gaza verði opnuð án tafar og að mannúðaraðstoð verði send úr öllum áttum, einnig Ísrael, til þeirra sem eru í sárri neyð.

Þessu verður að fylgja eftir með friðarráðstefnu þar sem fulltrúar allra deiluaðila fá sæti við samningaborðið til að vinna sameiginlega að því að finna leiðir til varanlegs friðar.

Við getum ekki lengur leyft þessum átökum að stjórnast af græðgi og aðskilnaðarstefnu. Við getum ekki lengur fylgst með óábyrgum aðgerðum ungs fólks úr fjarska sem leiðir til enn frekari hörmunga. Það sem þarf núna er sanna leiðtogahæfileika til friðar þar sem stuðst er við reynslu, þekkingu, hugrekki og framsýni.

Taki Forseti Íslands og ríkisstjórn ekki á þessum málum af ábyrgð, láti af stuðningi við hernað og taki upp beinar aðgerðir til friðar, mun ég bjóða mig fram til forseta í komandi kosningum 2024 til að koma inní þessa umræðu aftur. Mín stefnuskrá er stofnun Alþingis í Jerúsalem sem framlag Íslands til að skapa hlutlausan vettvang friðarviðræðna í anda elsta þjóðþings heims. Alþingi Íslendinga var hornsteinn okkar Íslendinga að friðsælu þjóðfélagi.

Höfundur er stofnandi Friðar 2000.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×