Þakco reiknivélin á leiðinni í innivinnuna Þakco 16. október 2023 08:31 Undanfarin ár hafa hefðbundin smíðaverkefni innandyra verið æ fyrirferðameiri í rekstri fyrirtækisins. Þessum verkefnum er sinnt af sér deild innan Þakco sem nefnist Fagco. Verktakafyrirtækið Þakco hefur skapað sér gott orðspor hérlendis þegar kemur að endurnýjun á þökum og nýbyggingu þaka.
Síðustu ár hafa þó hefðbundin smíðaverkefni innandyra verið æ fyrirferðameiri í rekstri fyrirtækisins en þeim er sinnt af sér deild innan Þakco sem nefnist Fagco. „Starfsfólk okkar einblínir á fjölbreytt verkefni innandyra á borð við uppsetningar innréttinga, parketlögn, uppsetningu milliveggja, við setjum upp rakasperrur auk fjölda annarra verkefna,“ segir Snævar Már Jónsson, eigandi Þakco. „Við bjóðum upp á allan skalann í smíðavinnu og því er ósköp fátt sem við tökum ekki að okkur. Innan okkar raða eru menn sem hafa unnið við innréttingarsmíði í mörg ár en hún er með fínni smíðavinnu sem hægt er að fara í og einnig menn sem hafa reist hundruð einingarhúsa. Þannig að verkefnin spanna ansi vítt svið eins og sjá má.“ Fagco tók nýlega í gegn verslunina Herragarðinn í Kringlunni. Eins og sjá má hefur Herragarðurinn tekið miklum breytingum og lítur nú enn glæsilegri út. Mikill vöxtur undanfarin ár Deildin Fagco hefur vaxið hratt og eru næg verkefni framundan bætir Óðinn Þór Óðinsson húsasmíðameistari við. „Við erum líka með úrvals starfsfólk en hjá okkur starfa um 20 manns, þar af tólf smiðir og fjórir húsasmíðameistarar. Auk þess erum við eitt af fáum fyrirtækjum á þessum markaði sem býður upp á jafn víðtæka þjónustu. Hjá okkur er hægt að kaupa allan pakkann í stað þess að skipta við ólíka verktaka í stórum og smærri verkefnum. Við finnum líka á viðskiptavinum okkar að þeir kunna svo sannarlega að meta þessa alhliða þjónustu sem sparar þeim sporin og óþarfa vesen.“ Reiknivél sem einfaldar lífið Á vef Þakco, thakco.is, er reiknivél en með henni er hægt að reikna út kostnað við þakframkvæmdir lið fyrir lið. Þessi reiknivél hefur notið mikilla vinsælda. „Fyrir fyrirtæki sem í mörg ár einblíndi á endurnýjun og nýbyggingu þaka vorum við að fá ansi mikla traffík inn á vefinn okkar eða um 4.000 heimsóknir á mánuð,“ segir Snævar. „Reiknivélin er einstök sinnar tegundar hérlendis en hún var hugsuð fyrir hinn almenna viðskiptavin sem er að sinna viðhaldi á húsinu sínu. Fólk tók strax mjög vel í reiknivélina en þar er hægt að reikna út kostnað við þakframkvæmdir lið fyrir lið og fá formlegt tilboð.“ Deildin Fagco sinnir fjölbreyttum smíðaverkefnum innandyra. Þessa dagana er verið að vinna í að útvíkka reiknivélina segir Snævar. „Á næstunni ætlum við að bjóða upp á reiknivélar fyrir parket, gifs og þessa helstu verkliði sem fólk er að huga að. Þá er hægt að reikna út gróflega hver kostnaður er við til að mynda parketlagnir, hurðaísetningar, gluggaísetningar og margt fleira en oft hefur fólk ekki hugmynd um það fyrir fram. Þar til nýju reiknivélarnar verða tilbúnar geta viðskiptavinir sent inn fyrirspurnir á sérstöku fyrirspurnarformi undir flipanum Innivinna á vef okkar. Við hlökkum mikið til að bæta þessum möguleikum við reiknivélina okkar og erum að vinna hörðum höndum við að koma því af stað. Miðað við viðtökurnar á þak reiknivélinni er þetta eitthvað sem fólk hefur mikil not fyrir og á eftir að einfalda því að setja saman heilu framkvæmdirnar á sínu heimili eða húsnæði.“ Nánari upplýsingar á thakco.is.
Hús og heimili Mest lesið „Það segir sig sjálft að við höfum endalausa orku“ Atvinnulíf Ráðin framkvæmdastjóri Pekron Viðskipti innlent Sagði einhver fasteign á hjólum? Volvo EX90 reynsluakstur Samstarf Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Atvinnulíf Stefnt á að koma upp 98 hleðslustöðvum í Kópavogi Neytendur Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sagði einhver fasteign á hjólum? Volvo EX90 reynsluakstur Enginn þarf að vera giftur lánunum sínum út lánstímann Ótrúlegar viðtökur á stuttum tíma Greiðsluáskorun Sinna verktöku hjá Wolt samhliða námi og öðrum störfum Smáhýsin frá BYKO eru vinsæll valkostur fyrir hvaða tilefni sem er Langar meira í 911 T-Hybrid en bæði lungun sín Fjölbreyttar lausnir fyrir íslenskan markað Lánskjaravakt Aurbjargar auðveldar leit að hagstæðara húsnæðisláni Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Nútímaleg nálgun í netöryggi Íslensk framleiðsla og traust lausn fyrir byggingarmarkaðinn Með hollustu að leiðarljósi Sjá meira