Erlent

Ekkert flug til og frá Luton vegna mikils elds­voða

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Eldurinn logaði glatt í nótt en svo virðist sem slökkvistarfi sé að ljúka.
Eldurinn logaði glatt í nótt en svo virðist sem slökkvistarfi sé að ljúka. Stilla

Búið er að loka Luton-flugvelli á Englandi vegna eldsvoða sem breiddist hratt út um bílageymslu á vellinum. Byggingin virðist hrunin að hluta og öll starfsemi vallarins liggur niðri.

Ferðalöngum hefur verið sagt að halda sig frá flugvellinum og að allt flug muni liggja niðri þar til að minnsta kosti þrjú í dag. Þá hefur þeim verið ráðlagt að setja sig í samband við viðkomandi flugfélög.

Flug Easy Jet frá Luton til Keflavíkur sem átti að lenda klukkan 8.20 í morgun var aflýst og sömuleiðis brottför klukkan 9 frá Keflavík til Luton.

Á samfélagsmiðlum má sjá myndskeið þar sem það sést vel hvernig eldurinn hefur breiðst út og reyk leggur frá efstu hæð bílageymslunnar. Þá hafa sprengingar heyrst og hávaði frá þjófavarnakerfum bifreiða.

Viðbragðsaðilar í Bedfordshire segja eldinn hafa náð til um helmings mannvirkisins og að hluti þess sé hruninn. Útkall barst rétt fyrir klukkan 22 í gærkvöldi og enn var unnið að því að slökkva eldinn klukkan 4 í morgun.

Þegar mest var tóku yfir hundrað slökkviliðsmenn þátt í aðgerðum, á fimmtán slökkviliðsbifreiðum. Þá voru þrjú loftför notuð við slökkvistarfið.

Einn almennur borgari og sex slökkviliðsmenn eru sagðir hafa þurft á aðhlynningu að halda vegna mögulegrar reykeitrunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×