Innlent

Hægst hefur á landrisinu í Öskju

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Öskjuvatn er dýpsta vatn landsins.
Öskjuvatn er dýpsta vatn landsins. Vísir/RAX

Mælingar sýna að hægst hefur á landrisinu í Öskju frá því í byrjun ágúst. Þetta er eitt af því sem var rætt á stöðufundi sérfræðinga Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands og Almannavörnum sem haldinn var á Veðurstofunni í dag. Á nokkrum GPS-mælum sem staðsettir eru við Öskju hefur ekkert landris mælst frá því í lok ágúst.

Á sama tímabili eru engar vísbendingar um aukna jarðskjálftavirkni eða óeðlilegar breytingar á jarðhitavirkni í Öskju.

„Á þessari stundu er ekki ljóst hvað veldur þessari breytingu á þenslunni, en mögulega hefur innflæði kviku stöðvast eða að kvikan hefur fundið annan farveg sem dregur úr kvikuþrýstingi undir eldstöðinni,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Reglulegar mælingar við Öskju hafa áður sýnt tímabil sem einkennast af landsigi og eitt tímabil sem einkenndist af landrisi án þess að til eldgoss komi.

„Á þessu stigi er ekkert hægt að fullyrða um hver þróun mála verður í Öskju og Veðurstofa Íslands heldur áfram að fylgjast grannt með svæðinu sem enn er á óvissustigi Almannavarna. Unnið verður frekar úr þeim gögnum sem liggja fyrir m.a. með líkangerð til að útskýra hvað veldur þessum breytingum í eldstöðinni. Einnig var nýrri skjálftastöð var bætt við í síðustu viku vestan við Öskju til að bæta staðsetningu og dýpt jarðskjálfta.“

Niðurstöður mælinga frá því í sumar gáfu engar vísbendingar um aukna virkni

Vísindamenn voru við mælingar í Öskju í ágúst og söfnuðu meðal annars gögnum um gasútstreymi til að meta hvort aukning hafi orðið á jarðhita á svæðinu. Þær mælingar, ásamt þeim gögnum sem lágu fyrir í lok ágúst, gáfu engar vísbendingar um aukna jarðhitavirkni í Öskju eða um að kvika væri að færast nær yfirborðinu.

„Það er talsverð áskorun að vakta eldstöðina yfir vetrartímann, en farið verður í Öskju til að fylgjast með og bæta við tækjabúnaði, til dæmis myndavélum og jarðhitamælum,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Verði engar breytingar á virkni í Öskju verða frekari upplýsingar um stöðuna birtar á vef Veðurstofunnar eftir mánuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×