Viðskipti innlent

Tekur við rit­stjórn Lifðu núna

Atli Ísleifsson skrifar
Steingerður Steinarsdóttir var ritstjóri Vikunnar á árunum 2012 til 2022.
Steingerður Steinarsdóttir var ritstjóri Vikunnar á árunum 2012 til 2022. Aðsend

Steingerður Steinarsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Vikunnar, hefur tekið við stöðu ritstjóra Lifðu núna. Hún tók við stöðunni um mánaðamótin.

Vefurinn er ætlaður fólki sem er komið yfir miðjan aldur og tekur Steingerður við stöðunni af Ernu Indriðadóttur.

Í tilkynningu segir að Steingerður sé með BA-próf í ensku og fjölmiðlafræði og diplóma i hagnýtri fjölmiðlun.

„Hún er einnig með diplóma í kennsluréttindum. Hún á að baki áratuga starfsferil á fjölmiðlum, sem hófst á Þjóðviljanum. Fljótlega fór hún að vinna á tímaritum og var lengst af á Vikunni, fyrst sem blaðamaður og svo ritstjóri frá 2012 til 2022.

Erna Indriðadóttir fráfarandi ritstjóri stofnaði Lifðu núna í byrjun árs 2014 og hefur rekið vefinn síðan. Lestur hans hefur aukist ár frá ári, allar götur síðan og er í dag nokkuð víðlesinn enda er hann eini fjölmiðillinn sem fjallar eingöngu um lífið eftir miðjan aldur og mun halda áfram að gera það í ritstjórn Steingerðar.

Erna sem er að fara á eftirlaun eftir rúm 40 ár á vinnumarkaði hyggst snúa sér að öðrum verkefnum,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×