Síldarminjasafnið hlaut Phoenix-verðlaunin Atli Ísleifsson skrifar 13. september 2023 14:38 Síldarminjasafnið á Siglufirði. Vísir/Jóhann K. Síldarminjasafnið á Siglufirði hlaut Phoenix-verðlaun Félags bandarískra ferðarithöfunda (e. Society of American Travel Writers) síðastliðinn laugardag.
Frá þessu segir á vef Fjallabyggðar. Þar kemur fram að umrædd verðlaun hafi fyrst verið veitt árið 1969 og eru því orðin rótgróin. „Með þeim er veitt viðurkenning á sviði sögu, menningar og umhverfis og heiðraðir áfangastaðir sem sýna ábyrga, sjálfbæra ferðaþjónustu. Forsaga þess að Síldarminjasafnið var tilnefnt til verðlaunanna er sú að í júlí 2022 heimsótti Dale Ann Leatherman safnið með hópi ferðafólks og varð algerlega dolfallin. Í kjölfarið setti hún sig í samband við Anitu Elefsen safnstjóra og fékk allar nauðsynlegar upplýsingar fyrir tilnefninguna. Dale tilkynnti starfsfólki safnsins um úthlutun verðlaunanna nú um helgina og sagðist vonast til þess að verðlaunin yrðu til þess að auka vitund fólks um sögulega áfangastaði og einstakt átak bæjar til að varðveita arfleifð sína. Verðlaunin eru sannarlega enn ein rósin í hnappagat Síldarminjasafnsins,“ segir á vef Fjallabyggðar.
Fjallabyggð Söfn Mest lesið Dvaldi í tjaldi á hringtorgi þar til lögreglan kom Lífið Vann til margra verðlauna fyrir stól sem slær í gegn Tíska og hönnun Lesbíska dragdrottningin sem er að sigra tónlistarheiminn Tónlist Aukin lofthæð, Versace flísar, pottur og pool herbergi Lífið Starfsfólkið í fyrsta sæti og börnin í öðru Lífið Akureyringar komast loksins á Prikið Lífið Íslenskir dansarar sópa til sín verðlaunum á heimsmeistaramóti Lífið Tinna Brá og Ari Eldjárn færðu fertugsafmælið út á sjó Lífið Hugmyndin var að kveikja bókstaflega í Emmsjé Gauta Tónlist Lætur langþráðan draum rætast og gefur út óð til grínsins Tónlist Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira