Innlent

Fyrstu hvalirnir veiddir

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Mótmælendurnir Anahita Babei og Elissa Bijou dvöldu í 33 tíma í möstrum hvalveiðiskipanna Hvals 8 og Hvals 9 í vikunni til að mótmæla fyrirhuguðum hvalveiðum.
Mótmælendurnir Anahita Babei og Elissa Bijou dvöldu í 33 tíma í möstrum hvalveiðiskipanna Hvals 8 og Hvals 9 í vikunni til að mótmæla fyrirhuguðum hvalveiðum. Vísir/Arnar

Tvær langreyðar hafa verið veiddar á hvalveiðivertíðinni sem nú stendur yfir. Áhafnir Hvals 8 og Hvals 9 sigldu út á miðin í gær.

Samkvæmt heimildum fréttastofu eru skipin væntanleg til hafnar í Hvalfirði í fyrramálið, þar sem gert verður að hvölunum. 

Fyrsti hvalurinn veiddist laust fyrir hádegi á Hval 8. Áhöfnin á Hval 9 veiddi svo aðra langreyði nokkrum klukkutímum síðar. Ákveðið var að Hvalur 8 héldi strax til lands og má því telja að hvalverkun hefjist við birtingu á morgun.

Mótmæli fyrirhugaðra hvalveiða vöktu töluverða athygli í vikunni en þær Anahita Babei og Elissa Bijou dvöldu í möstrum hvalveiðiskipanna Hvals 8 og Hvals 9 í samtals 33 klukkustundir. Þá hótuðu Hollywoodstjörnur á borð við James Cameron og Leonardo DiCaprio að hætta að koma hingað til lands með kvikmyndaverkefni, eða taka þátt í slíkum verkefnum hér á landi, ef af veiðunum yrði.


Tengdar fréttir

„Þessi aðgerð tókst bara prýðilega“

Formaður Landssambands lögreglumanna vísar samlíkingu annars mótmælandans um borð í hvalveiðiskipum Hvals, þar sem lögreglunni hér á landi er líkt við lögregluna í Íran, á bug. Hann telur aðgerðir lögreglu í tengslum við mótmælin hafa gengið vel.

Segja við­brögð lög­reglunnar við mót­mælunum ó­á­sættan­leg

Konurnar sem hlekkjuðu sig fastar í möstrum tveggja hvalveiðiskipa í einn og hálfan sólarhring segja aðgerðir lögreglunnar í upphafi mótmælanna hneykslanlegar. Lögreglan hér hafi sýnt ofbeldisfyllri hegðun en önnur þeirra hafi lent í hjá írönskum kollegum þeirra. Þær telja að mótmælin hafi borið árangur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×