Seðlabankinn telur að atvinnuleysi aukist í 4,4 prósent á tveimur árum
![Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Seðlabankinn telur að atvinnuleysi muni aukast úr 3,3 prósentum að meðaltali í ár í 4,4 prósent á næstu tveimur árum.](https://www.visir.is/i/1860C55273A5FF7C65E993128B9A95C6FFF06970C2704571E5BD7B69920D2210_713x0.jpg)
Vísbendingar eru um að hægja muni á vinnuaflseftirspurn næsta misserið. Niðurstöður sumarkönnunar Gallup benda til þess að dregið hafi úr ráðningaráformum fyrirtækja en að þau séu þó enn yfir meðallagi, segir í Peningamálum Seðlabankans.