Orri Steinn tók markamet af Rúnari Má Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2023 13:01 Orri Steinn Óskarsson með boltann eftir leikinn og sýnir að sjálf sögðu þrjá putta fyrir þrjú mörk. Getty/Lars Ronbog Orri Steinn Óskarsson varð í gærkvöldi fyrsti íslenski leikmaðurinn sem nær að skora þrennu í Evrópuleik á móti íslensku liði.
Orri Steinn skoraði þrjú mörk í 6-3 sigri FC Kaupmannahöfn á Íslandsmeisturum Breiðabliks og var einnig með eina stoðsendingu á einn liðsfélaga sinn. Orri sló með þessu markamet Rúnars Más Sigurjónssonar frá árinu 2016. Enginn Íslendingur hefur skorað fleiri mörk í leik á móti íslensku liði í Evrópukeppni. Rúnar átti metið síðan hann skoraði bæði mörk svissneska félagsins Grasshopper í 2-1 sigri á KR í undankeppni Evrópudeildarinnar 21. júlí 2016. Rúnar kom Grasshopper í 1-0 á 44. mínútu og skoraði síðan sigurmarkið á 68. mínútu eftir að KR jafnaði metin í upphafi seinni hálfleiks. Jóhannes Eðvaldsson var fyrstur Íslendinga til að skora á móti íslensku liði í Evrópukeppni þegar hann skoraði fyrir Celtic gegn Val. Jóhannes skoraði þá fyrsta mark Celtic í 7-0 sigri á Celtic Park í Evrópukeppni bikarhafa 1. október 1975. Arnór Guðjohnsen skoraði fyir sænska liðið Örebro í 3-1 sigri á Keflavík í Intertoto keppninni en leikurinn fór fram í Svíþjóð 23. júní 1996. Arnór skoraði fyrsta mark sænska liðsins í leiknum á 23. mínútu. Viðar Örn Kjartansson skoraði síðan fyrir ísraelska félagið Maccabi Tel Aviv 3-1 sigri á KR í undankeppni Evrópudeildarinnar 13. júlí 2017. Viðar skoraði annað mark ísraelska liðsins og kom liðinu yfir á 79. mínútu eftir að KR-ingar höfðu komist í 1-0.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Breiðablik Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sport „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fótbolti Fleiri fréttir Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Í beinni: Newcastle - Nottingham Forest | Áhugaverð viðureign á St James' Park Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Hafa ekki enn fagnað sigri eftir jól Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Kom inn á í fyrri háfleik og skoraði í fyrsta sinn í fimm mánuði Arnór Ingvi skoraði tvö mörk í bikarsigri Urðu að ósk Mourinho og kölluðu á útlenskan dómara Ein af þeim sem hefur haldið oftast hreinu í Evrópu Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Sjá meira