Stutt í ákvörðun Man. Utd um Greenwood Sindri Sverrisson skrifar 31. júlí 2023 10:00 Mason Greenwood var meðal annars ákærður fyrir líkamsárás og tilraun til nauðgunar. Getty/Paul Currie Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Manchester United munu tilkynna ákvörðun sína um framtíð Masons Greenwood áður en ný leiktíð liðsins hefst með leik við Wolves eftir tvær vikur.
Frá þessu greina enskir fjölmiðlar í dag en óvissa hefur ríkt um það í eitt og hálft ár hvort að Greenwood spili á nýjan leik fyrir United eða ekki, þó að hann sé samningsbundinn félaginu til 2025. Greenwood spilaði síðast fyrir United í janúar 2022, í 1-0 sigri gegn West Ham, en var handtekinn í sama mánuði. Þessi 21 árs gamli Englendingur var svo ákærður í október í fyrra, meðal annars vegna tilraunar til nauðgunar og vegna líkamsárásar. Allar ákærur voru hins vegar felldar niður í febrúar síðastliðnum eftir að lykilvitni dró sig til hlés og ný sönnunargögn komu fram, þar sem ekki þótti þá lengur raunhæfur möguleiki á sakfellingu. Greenwood hefur ekki mætt á æfingar hjá United frá því að málið kom upp. Erik ten Hag, knattspyrnustjóri United, sagði við fjölmiðla í Bandaríkjaferð United að hann væri búinn að segja sína skoðun á málinu og að nú þyrfti félagið að taka ákvörðun. Sú ákvörðun ætti að liggja fyrir á næstu dögum, eða í það minnsta áður en að United mætir Wolves 14. ágúst, og mun byggja á rannsókn félagsins sem ráðist var í eftir að ákærur gegn Greenwood voru felldar niður.
Enski boltinn Mál Mason Greenwood Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti „Ég trúi þessu varla“ Sport Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar Fótbolti Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Enski boltinn Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Fótbolti Fleiri fréttir Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum Sjá meira