Erlent

Myrti ólétta kærustu sína

Máni Snær Þorláksson skrifar
Hnefaleikakappinn Felix Verdejo Sánchez á vigtun í Madison Square Garden í New York árið 2016. Sánchez var í gær dæmdur fyrir að myrða ólétta kærustu sína.
Hnefaleikakappinn Felix Verdejo Sánchez á vigtun í Madison Square Garden í New York árið 2016. Sánchez var í gær dæmdur fyrir að myrða ólétta kærustu sína. AP/Bebeto Matthews

Hnefaleikakappinn Félix Verdejo Sánchez hefur verið dæmdur fyrir að fremja mannrán og myrða Keishla Rodríguez Ortiz, sem var ólétt þegar hún var myrt. Tæp tvö ár eru síðan lík Ortiz fannst í lóni í San Juan, höfuðborg Púertó Ríkó. 

Auk þess að hafa verið ákærður fyrir morðið á Ortiz og ófæddu barni hennar þá var Sánchez einnig ákærður fyrir mannrá, bílrán og vopnalagabrot. Samkvæmt People var Ortiz kærasta Sánchez.

Foreldrar Ortiz segja í samtali við El Nuevo Día að hún og Sánchez hafi kynnst þegar þau voru í grunnskóla. Þau hafi haldið áfram samskiptum síðan þá. Ortiz var mikill dýravinur en hún vann við að snyrta gæludýr, sjálf átti hún tvo ketti og tvo hunda. Þegar hún var ekki í vinnunni var hún yfirleitt að hjálpa flækingsdýrum.

Verdejo var sakaður um að hafa ráðið Luis Antonio Cádiz Martínez til að hjálpa sér. Martínez fór yfir það fyrir dómi hvernig hann og Sánchez skipulögðu morðið. Sjálfur játaði hann aðild sína að málinu á síðasta ári.

Sánchez keppti fyrir hönd Puerto Rico á Ólympíuleikunum í London árið 2012. Hér sést hann keppa við Ahmed Mejri frá Túnis.Getty/Scott Heavey

Daginn eftir að þeir skipulögðu morðið sóttu þeir Ortiz á heimili hennar. Martínez segir hana hafa komið í bílinn og sýnt Sánchez jákvætt óléttupróf. Þá hafi þeir gripið í hár hennar og kýlt hana í kjálkann. Sánchez á þá að hafa byrlað henni ólyfjan með sprautu.

Síðar keyrðu þeir í sitthvorum bílnum að brú, festu þungan stein við hana og köstuðu henni fram af brúnni.

Vill að morðingi dóttur sinnar lifi 

José Antonio Rodríguez, faðir Ortiz, ræddi við fjölmiðla fyrir utan dómssal eftir að Sánchez var dæmdur sekur. „Megi hann lifa út ævina og hugsa um allt sem hann gerði dóttur minni,“ sagði Rodríguez.

Þá sagðist hann alls ekki óska þess að Sánchez deyi. „Ég óska þess að hann verði heill heilsu og að hann lifi eins lengi og hann getur. Ef hann vill lifa í tvö hundruð ár, leyfið honum það, en hann á að muna eftir því sem hann gerði dóttur minni, alltaf.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×