Körfubolti

Elsti leikmaður NBA deildarinnar segir þetta gott

Árni Jóhannsson skrifar
Udonis Haslem átti langan og farsælan feril í NBA deildinni.
Udonis Haslem átti langan og farsælan feril í NBA deildinni. AP

Elsti leikmaður NBA deildarinnar, Udonis Haslem leikmaður Miami Heat, hefur sagt þetta gott og lagt skóna á hilluna eftir 20 tímabil í NBA deildinni. Haslem spilaði allan sinn feril með Miami Heat og vann þrjá titla með félaginu.

Haslem sem í dag er orðinn 43 ára spilaði annað hvort sem kraftframherji eða miðherji í mörgum frábærum liðum sem Miami Heat tefldi fram á undanförnum tveimur áratugum. Hann var ekki valinn í nýliðavalinu en gekk til liðs við Heat og er talinn af mörgum holdgervingur þeirrar menningar sem einkennt hefur liðið frá South Beach og kallað er „Heat culture“ enda fyrirliði liðsins.

Haslem er besti frákastari í sögu Miami Heat en á 20 ára ferli sínum tók hann í heild 5791 frákast en að meðaltali skilaði hann 6,6 fráköstum að meðaltali í leik. Þá skoraði hann 7,5 stig að meðaltali og gaf 0,8 stoðsendingar í 879 leikjum.

Eins og fram hefur komið þá vann Haslem þrjá NBA titla en fyrsti kom í hús árið 2006 en þá voru aðalstjörnur liðsins Dwayne Wade og Shaquille O´Neal. Seinni tveir titlanir voru svo unnir árin 2012 og 2013. Þá var Wade enn í stóru hlutverki hjá liðinu en það var búið að hlaða heldur betur utan um hann en Lebron James, Chris Bosh og Ray Allen spiluðu allir með liðinu. Þá tók hann þátt í úrslitaeinvíginu gegn Denver Nuggets á liðnu tímabili og varð þar með sá elsti til að spila í úrslitum deildarinnar.

Udonsi Haslem naut góðs af því að spila með öllum þessum frábæru leikmönnum og hefur Miami Heat sagt að treyja hans, númer 40, muni verða hengd upp í rjáfur leikvallar liðsins í komandi framtíð. Haslem kvaddi aðdáendur sína og liðsins með færslu á samfélagsmiðlum sem má lesa hér að neðan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×