Erlent

Sextán manns úr þremur fjölskyldum fórust í Alsír

Heimir Már Pétursson skrifar
Íbúar reyna að ráða niðurlögum elda sem kviknuðu skyndilega í útjaðri Lissabon í gær.
Íbúar reyna að ráða niðurlögum elda sem kviknuðu skyndilega í útjaðri Lissabon í gær. AP/Armando Franca

Að minnsta kosti þrjátíu og fjórir hafa farist í skógareldum í Alsír, þar af sextán fullorðnir og börn úr þremur fjölskyldum. Eldar blossuðu óvænt upp í nágrenni Lissabon höfuðborgar Portúgals í gær.

Hér sjást eldar læsa sig í gróður nærri húsum í Capaci skammt frá Palermo á Sikiley í morgun.AP/Alberto Lo Bianco

Ekkert lát er á skógareldum víðs vegar um suður Evrópu og norður Afríku. Undanfarna daga hafa eldar blossað upp bæði í Alsír og Túnis og dreifa sér hratt vegna hvassviðris. Í Alsír hafa að minnsta kosti þrjátíu og fjórir farist í skógareldunum. Þeirra á meðal sextán manns úr þremur fjölskyldum sem reyndu að flýja á bílum niður að strönd. Í þeirra hópi voru bæði fullorðnir og börn.

Sextán manns í Alsír, fullorðnir og börn, úr þremur fjölskyldum fórust þegar fólkið reyndi að flýja eldana á bílum niður að strönd.AP

Þá hafa tugir manna, aðallega eldra fólk, verið flutt frá bæ í nágrenni Lissabon höfuðborg Portúgals. Þar kviknuðu skógareldar óvænt í gær. Vindhviður ná allt að 60 kílómetrum á klukkustund og hafa auðveldað eldunum að fara hratt yfir. Eldar loga einnig í Tyrklandi, á Sikiley á Ítalíu og í Króatíu.

Þessi mynd frá slökkviliði í héraði Palermo á Sikiley er táknræn fyrir þá gífurlegu skógarelda sem geisa þessa dagana víða um suðurhluta Evrópu. This picture released by the Italian firefighters shows wildfires in the region of Palermo in Sicily, Italy, Tuesday July 25, 2023. (Italian Firefighters - Vigili del Fuoco via AP)AP/Ítalska slökkiliðið

Enn er neyðarástand víða í Grikklandi þar sem eldar loga víða. Tveir flugmenn á vatnsflugvél fórust í gær þegar flugvélin hrapaði við slökkvistörf á Rhodes. 

Margir Grikkir á Ródos, Korfú og fleiri eyjum hafa misst aleiguna og lífsviðurværi sitt þar sem gisti- og veitingastaðir hafa orðið eldunum að bráð. Vasilis Sofitsis sem rekur fyrirtæki sem sér um rekstur og viðhald eigna segir grísku eyjarnar hafa orðið fyrir stórslysi.

„Þetta er stórslys. Vegna þess að aðaltekjur eyjanna koma frá ferðaþjónustunni. Ef afpantanir fara síðan að hrannast upp vegna þess að fólk óttast að koma hingað verður þetta alger hörmung fyrir okkur, fyrir allar grísku eyjarnar,“ segir Sofitsis.


Tengdar fréttir

Tuttugu og fimm fórust í skógareldum í Alsír

Skógareldar halda áfram að breiða úr sér víða um suður Evrópu og norður Afríku. Þriðja hitabylgjan skall á Grikklandi í dag þegar hitinn fór á ný yfir fjörutíu gráður. Tuttugu og fimm manns hafa farist í skógareldum í Alsír.

Þúsundir ferðamanna flýja Grikkland

Þúsundir ferðamanna reyna að komast heim til sín frá Rhodes eyju í Grikklandi vegna stjórnlausra skógarelda þar. Eldar loga á tugum staða í Grikklandi og hefur fjöldi ríkja sent Grikkjum aðstoð undanfarna daga.

Skógareldar ógna grísku eyjunum

Skógareldar brenna nú á fjölmörgum grískum eyjum en einna verst er ástandið á ferðamannaeyjunni Ródos.

Yfir þúsund börn flúðu sumar­búðir vegna gróður­elda

Tólf hundruð börn þurftu að yfirgefa sumarbúðir vestan Aþenu á meginlandi Grikklands eftir að gróðureldar brutust þar út í fyrradag. Eldarnir eru ekki þeir fyrstu sem koma í kjölfar mikillar hitabylgju sem nú ríður yfir í Evrópu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×