Enski boltinn

Liver­pool mætir til leiks með nýtt leik­­kerfi: Verður Trent á miðjunni?

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Trent Alexander-Arnold gæti spilað á miðjunni í vetur.
Trent Alexander-Arnold gæti spilað á miðjunni í vetur. Harry Langer/Getty Images

Þó oftast nær sé lítið sem ekkert að marka vináttuleiki þá vakti uppstilling Liverpool-liðsins í leiknum gegn þýska B-deildarliðinu Karlsruher athygli. Það virðist sem Jurgen Klopp ætli að breyta til í vetur.

Síðan Klopp tók við Liverpool hefur liðið nær eingöngu spilað hefðbundið 4-3-3 með sóknarsinnaða bakverði, þriggja manna miðju, sóknarmenn á vængjunum og framherja sem dregur sig niður til að tengja spil. Nú virðist ætla að verða breyting á.

Eftir skelfilega byrjun á síðustu leiktíð fór Klopp aðeins að fikta í leikkerfi sínu og breyta því í von um betri úrslit. Ef marka má fyrsta vináttuleik tímabilsins ætlar Klopp að halda sig við þá hugmyndafræði.

Þrír – Kassi – Þrír

Liverpool mætir með mikið breytt lið til leiks þar sem miðja liðsins hefur gengið í gegnum gríðarlegar breytingar. Naby Keïta er farinn til Werder Bremen, James Milner er farinn til Brighton & Hove Albion. Jordan Henderson er líklega á leið til Sádi-Arabíu og sömu sögu er að segja af Fabinho.

Hvort það hafi áhrif á ákvörðun Klopp er óvitað en í leiknum gegn Karlsruher má segja að liðið hafi spilað 3-4-3 með „kassa“ miðju þegar það sótti. 

Varnarlega varðist Liverpool í 4-3-3 leikkerfi en þegar liðið sótti fór Conor Bradley, hægri bakvörður, inn á miðjuna þar sem Trent Alexander-Arnold, sem hefur nær eingöngu spilað hægri bakvörð á sínum ferli, var. Að sama skapi dró vinstri bakvörður liðsins sig inn og myndaði þriggja manna varnarlínu.

Fyrir framan Trent og Bradley voru svo tveir sóknarþenkjandi miðjumenn. Reikna má með að Dominik Szoboszlai verði þar ásamt Alexis Mac Allister en báðir gengu í raðir Liverpool í sumar.

Hvort þetta verði til þess að Liverpool ógni toppliðum deildarinnar verður að koma í ljós en liðið má ekki við því að missa af efstu fjórum sætunum annað tímabilið í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×