Innlent

Að minnsta kosti mánuður í bráða­birgðaskýrslu vegna flug­slyssins

Heimir Már Pétursson skrifar
TF-KLO flaug frá Egilsstaðaflugvelli sunnudaginn 9. júlí.
TF-KLO flaug frá Egilsstaðaflugvelli sunnudaginn 9. júlí. Vísir/Vilhelm

Bráðabirgðaskýrslu um flugslysið við Sauðahnjúka fyrir austan fyrir rúmri viku er ekki að vænta fyrr en í fyrsta lagi eftir mánuð. Áætluðum flugtíma flugvélarinnar í hinni örlagaríku ferð var við það að ljúka þegar slysið átti sér stað.

Samkvæmt flugáætlun flugmanns TF-KLO sunnudaginn 9. júlí átti að fljúga sjónflug frá Egilsstaðaflugvelli um Snæfell, Hraundali og Vestur-Öræfi og koma aftur til Egilsstaða eftir fjórar klukkustundir.

Flugvélin tók á loft frá Egilsstöðum kl. 13:29 og hefði því samkvæmt flugáætlun átt að koma til baka kl. 17:29. Tæpum hálftíma fyrir þann tíma, klukkan 17:01, nam Landhelgisgæslan boð frá neyðarsendi flugvélarinnar.

Þegar engin svör bárust frá flugvélinni hófst umfangsmikil leit að henni. Á áttunda tímanum töldu flugmenn áætlunarflugvélar Icelandair til Egilsstaða sig síðan sjá flak flugvélarinnar við Sauðahnjúk, sem reyndist rétt.

Rannsókn flugslysa lýtur nákvæmum alþjóðlegum reglum og fer fram á vettvangi Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Hún hefst um leið og tilkynning um flugslys berst nefndinni.

TF KLO fór á loft í útsýnisflug frá Egilsstöðum klukkan 13:29 sunnudaginn 9. júlí. Áætlað var að koma til baka klukkan 17:29. Landhelgisgæslan nam merki frá neyðarsendi flugvélarinnar klukkan 17:01.Grafík/Sara

Vettvangurinn er rannsakaður og gagna aflað og stutt viðtöl tekin. Eftir það hefst svo kölluð frumrannsókn sem getur staðið yfir í nokkrar vikur, jafnvel tvo mánuði.

Rannsóknir flugslysa eru í föstum skorðum og fara eftir alþjóðlegum reglum. Liðið getur allt að eitt til tvö ár þar til lokaniðurstaða liggur fyrir.Grafík/Sara

Að henni lokinni er gefin út bráðabirgðaskýrsla. Eftir útgáfu bráðabirgðaskýrslunnar hefst hin eiginlega rannsókn með úrvinnslu gagna, prófunum á kerfum, íhlutum og fleira.

Stjórnandi rannsóknarinnar skrifar síðan drög að lokaskýrslu sem lögð er fyrir rannsóknarnefndina. Hún fer nánar yfir málin og sendir drögin til umsagnar hjá aðilum máls. Ef athugasemdir berast tekur rannsóknarnefndin afstöðu til þeirra.

Að því loknu er gefin út lokaskýrsla. Reynslan sýnir að eitt til tvö ár geta liðið frá slysi þar til lokaskýrsla liggur fyrir.

Meginmarkmið rannsókna flugslysa er ekki að finna sökudólga. Rannsókn miðar að því að finna út hvað olli slysinu og gera tillögur til úrbóta til að koma í veg fyrir að sams konar slys eigi sér stað.


Tengdar fréttir

Flug­slysið hoggið stórt skarð í lítinn starfs­manna­hóp

Stjórn og starfsfólk Náttúrustofu Austurlands er harmi slegið eftir að tveir samstarfsfélagar þeirra og vinir létust í flugslysi á Austurlandi síðastliðinn sunnudag. Fríða Jóhannes­dóttir spen­dýra­fræðingur og Skarp­héðinn G. Þóris­son líf­fræðingur voru við reglulegar hreindýratalningar þegar slysið átti sér stað. Auk þeirra fórst Kristján Orri Magnús­son, flugmaður vélarinnar.

Far­þega­flug­vél, ferða­þjónustuþyrla og fis­flug­vél að­stoðuðu við leit

Þrír létust þegar flugvél brotlenti við Sauðahnjúka milli Hornbrynju og Hraungarða á Austurlandi síðdegis í gær. Aðgerðarstjóri Landhelgisgæslunnar segir farþegaflugvél Icelandair og ferðaþjónustuþyrlu, auk fisflugvélar hafa aðstoðað við að staðsetja flugvélaflakið. Minningarstund verður í Egilsstaðakirkju á morgun vegna slyssins.

Þrír létust í flugslysinu á Austurlandi

Flugmaður og tveir farþegar sem voru um borð í flugvél sem leitað var að á Austurlandi fyrr í kvöld eru látnir. Lögreglan á Austurlandi greinir frá þessu en flugvélin fannst klukkan 19:01 við Sauðahnjúka milli Hornbrynju og Hraungarða, þar sem hún hafði brotlent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×