Innlent

Býst við skjálftum hátt í 6,3 að stærð

Ólafur Björn Sverrisson og Margrét Björk Jónsdóttir skrifa
Benedikt Gunnar Ófeigsson, sérfræðingur hjá Veðurstofunni.
Benedikt Gunnar Ófeigsson, sérfræðingur hjá Veðurstofunni. vísir

Sérfræðingur í jarðskorpuhreyfingum býst við jarðskjálftum hátt í sex að stærð á næstu sólarhringum á Reykjanesskaga. Virknin á svæðinu er mjög sambærileg þeirri sem var í aðdraganda eldgossins á síðasta ári í Meradölum. 

„Það er nánast örugglega kvikuinnskot í gangi við Fagradalsfjall, á svipuðum slóðum og tvö síðustu gos. Þetta innskot er í gangi núna, byrjaði með djúpum skjálftum í gær sem hafa grynnkað upp í tvo til þrjá kílómetra. Einhver kvika er að nálgast yfirborðið,“ segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, sérfræðingur á sviði jarðskorpuhreyfinga hjá Veðurstofunni í samtali við fréttastofu.

Hann segir kvikuna greinilega á leiðinni upp en óvíst hvort hún nái upp á yfirborð. „Við teljum samt sem áður talsverðar líkur á að það gerist og það verði eldgos,“ segir Benedikt enn fremur.

Mesta hættan núna að hans sögn tengist jarðskjálftum og grjóthruni. Sérfræðingar hjá Veðurstofunni búast við skjálftum hátt í sex að stærð.

„Í Brennisteinsfjöllum gætum við átt von á stórum skjálftum, sex, kannski 6,2, 6,3. Við gerum ráð fyrir að það geti gerst,“ segir Benedikt. Kæmi slíkur skjálfti til með að finnast mest á höfuðborgarsvæði og ætti fólk því að gera ráðstafanir. 

Enn er ekki búið að meta magn kvikunnar og aðlögun hennar. Benedikt segir fyrstu merki gefa til kynna að um lítið magn sé að ræða en betur megi meta það á næstu tveimur dögum. Varðandi staðsetningu goss segir Benedikt:

„Það er lang líklegast að sprunga opnist milli Fagradalsfjalls og Keilis, kannski norðan við fyrri eldstöðvar. Það er ekki hægt að fullyrða um það en þetta er það sem við horfum á núna.“

Engin mannvirki eru í hættu, fyrst um sinn. Benedikt segir virknina núna mjög sambærilega þeirri sem var í aðdraganda goss í Meradölum í fyrra. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×