Viðskipti erlent

Fyrsta sak­felling stjórnarmanns VW í út­blásturs­hneykslinu

Kjartan Kjartansson skrifar
Rupert Stadler var forstjóri Audi, eins vörumerkja Volkswagen. Hann var ákærður fyrir svik og blekkingar um útblástur bíla sem framleiðandinn seldi.
Rupert Stadler var forstjóri Audi, eins vörumerkja Volkswagen. Hann var ákærður fyrir svik og blekkingar um útblástur bíla sem framleiðandinn seldi. AP/Matthias Schrader

Rupert Stadler, fyrrverandi forstjóri bílaframleiðandans Audi, varð fyrsti stjórnarmaður Volkswagen til þess að hljóta dóm í útblásturshneykslinu sem skók þýskan bílaiðnað þegar hann var fundinn sekur um svik í dag. Hann hlaut skilorðbundinn fangelsisdóm og dæmdur til að greiða háa sekt.

Stadler játaði sig sekan um að hafa haldið áfram að selja bíla sem menguðu meira en gefið var upp, jafnvel eftir að ljóstrað var upp um blekkingar Volkswagen Group, móðurfélags Audi. Bílaframleiðandinn notaði sérstakan hugbúnað sem dró úr útblæstri dísilbíla tímabundið á meðan eftirlitsaðilar skoðuðu þá.

Héraðsdómstóll í München dæmdi Stadler í 21 mánaðar fangelsi skilorðsbundið og til þess að greiða 1,1 milljón evra í sekt, að sögn Reuters. Stadler neitaði upphaflega sök. Hann hafi ekki vitað af blekkingunum og að viðskiptavinir hefðu borið skaða af. Viðurkenndi hann þó að það væri mögulegt og að hann hefði átt að gæta sín betur.

Þrír lægra settir millistjórnendur gerðu einnig sátt við saksóknara í málinu.

Volkswagen hefur samtals þurft að greiða meira en þrjátíu milljarða dollara í sektir og sáttir vegna blekkinga sinna. Tveir stjórnendur fyrirtækisins í Bandaríkjunum hafa hlotið fangelsisdóma.

Mál vofa enn yfir öðrum stjórnendum Volkswagen, þar á meðal Martin Winterkorn, fyrrverandi forstjóra samstæðunnar. Dráttur hefur orðið á máli hans vegna veikinda hans.


Tengdar fréttir

Eigendur dísilbíla eiga rétt á bótum frá Volkswagen

Dómstóll í Þýskalandi komst að þeirri niðurstöðu að bílaframleiðandinn Volkswagen þyrfti að greiða eigendum dísilbíla sem fyrirtækið átti við til að blekkja yfirvöld bætur í dag. Tugir þúsunda dómsmála hafa verið höfðuð í Þýskalandi vegna útblásturshneykslisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×