Enski boltinn

Arsenal snýr sér að Rice eftir að til­boði í Timber var hafnað

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Timber í baráttunni gegn Lionel Messi á HM 2022.
Timber í baráttunni gegn Lionel Messi á HM 2022. EPA-EFE/Noushad Thekkayil

Tilboði Arsenal í hinn 22 ára gamla Jurriën Timber, varnarmann Ajax, hefur verið neitað. Skytturnar hafa nú sett allt púður í að sækja Declan Rice, fyrirliða West Ham United.

Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, vill styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi tímabil en liðið var á toppi ensku úrvalsdeildarinnar nær allt síðasta tímabil til þess eins að sjá Manchester City lyfta titlinum.

Hinn fjölhæfi Timber er talinn passa fullkomlega inn í leikstíl Arsenal-liðsins en Hollendingurinn er vel spilandi miðvörður sem getur bæði spilað í hægri bakverði eða stigið upp á miðjuna.

Þrátt fyrir að vera nýorðinn 22 ára gamall er Timber frekar reynslumikill en hann hefur spilað 121 leik fyrir Ajax í öllum keppnum sem og 15 A-landsleiki.

Tilboðið var talið vera upp á 30 milljónir punda [rúma 5 milljarða íslenskra króna] en Ajax er talið vilja töluvert meira fyrir leikmann sem er samningsbundinn þangað til sumarið 2025.

Vísir greindi nýverið frá því að tilboði Arsenal í Rice hefði verið hafnað þar sem Hamrarnir vildu fá meira fyrir sinn snúð. Að mati West Ham er miðjumaðurinn að minnsta kosti 100 milljóna punda virði en Skytturnar eru ekki alveg sammála.

Fyrr í dag var greint frá því að Skytturnar hefði boðið 75 milljónir punda [13 milljarða króna] í leikmanninn. Kaupverðið gæti þó farið upp í 90 milljónir með öllu. Yrði hann dýrasti leikmaður í sögu Arsenal. 

David Ornstein hjá The Athletic er áfram með puttann á púlsinum þegar kemur að félagaskiptum á Englandi en hann telur líklegast að Hamrarnir hafni tilboðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×