Fótbolti

Draumaviðbót við Al Nassr væri Íslendingur segir Cristiano Ronaldo

Siggeir Ævarsson skrifar
Cristiano Ronaldo bendir á Sæbjörn Steinke á blaðamannafundinum.
Cristiano Ronaldo bendir á Sæbjörn Steinke á blaðamannafundinum. Stöð 2

Cristiano Ronaldo var léttur í lundu á blaðamannafundi Portúgals í dag fyrir leikinn gegn Íslandi á morgun. Þegar Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolti.net, spurði Ronaldo hvaða leikmann hann myndi vilja fá til Al Nassr glotti hann og svaraði hratt: „Þig!“

Sæbjörn birti sjálfur klippu af samskiptum þeirra félaga á Twitter og spyr einfaldlega: „Hvar skrifa ég undir?“

Í frétt Fótbolta.net um málið kemur fram að Al Nassr þurfi að reiða fram væna summu til að ganga frá þessum félagaskiptum, en það er svo sem nóg til hjá Sádunum svo að kannski fær Cristiano Ronaldo ósk sína uppfyllta ef allt gengur upp.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×