Menning

Grímuverðlaunum dreift jafnt í kvöld

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Sýning ársins á Grímunni er Ellen B.
Sýning ársins á Grímunni er Ellen B. Þjóðleikhúsið

Grímuverðlaunin voru veitt í tuttugasta og fyrsta skiptið í kvöld. Óhætt er að segja að verðlaunum hafi verið dreift nokkuð jafnt milli tilnefndra sýninga í kvöld.

Ellen B. var sýning ársins og hlaut tvö önnur verðlaun. Benedict Andrews fékk verðlaun sem leikstjóri ársins og Benedikt Erlingsson fékk verðlaun sem leikari ársins í aukahlutverki. 

Sýningin Geigengeist, sem sett var upp af Íslenska dansflokknum, hlaut að auki þrenn verðlaun, fyrir búninga, lýsingu og tónlist.

Sýningarnar Íslandsklukkan, Chicago og Hringrás hlutu allar tvenn verðlaun í athöfninni. 

Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands hlaut Arnar Jónsson, leikari, fyrir ævistarf sitt.

Alla vinningshafana má sjá hér að neðan.

Sýning ársins

  • Ellen B.
  • Sviðsetning - Þjóðleikhúsið

Leikrit ársins

  • Síðustu dagar Sæunnar
  • Eftir Matthías Tryggva Haraldsson
  • Sviðsetning: Borgarleikhúsið

Leikstjóri ársins

  • Benedict Andrews 
  • Ellen B.
  • Sviðsetning - Þjóðleikhúsið

Leikari ársins í aðalhlutverki

  • Hallgrímur Ólafsson 
  • Íslandsklukkan
  • Sviðsetning - Þjóðleikhúsið

Leikari ársins í aukahlutverki

  • Benedikt Erlingsson 
  • Ellen B.
  • Sviðsetning - Þjóðleikhúsið

Leikkona ársins í aðalhlutverki

  • Nína Dögg Filippusdóttir 
  • Ex
  • Sviðsetning - Þjóðleikhúsið

Leikkona ársins í aukahlutverki

  • Íris Tanja Flygenring 
  • Samdrættir
  • Sviðsetning - Tjarnarbíó

Barnasýning ársins

  • Draumaþjófurinn 
  • Sviðsetning - Þjóðleikhúsið

Leikmynd

  • Mirek Kaczmarek 
  • Prinsessuleikarnir
  • Sviðsetning - Borgarleikhúsið

Búningar

  • Alexía Rós Gylfadóttir og Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir  
  • Geigengeist
  • Sviðsetning - Íslenski dansflokkurinn

Lýsing

  • Kjartan Þórisson 
  • Geigengeist
  • Sviðsetning - Íslenski dansflokkurinn

Tónlist

  • Gígja Jónsdóttir og Pétur Eggertsson
  • Geigengeist
  • Sviðsetning - Íslenski dansflokkurinn

Hljóðmynd

  • Unnsteinn Manuel Stefánsson
  •  Íslandsklukkan
  • Sviðsetning - Þjóðleikhúsið

Söngvari

  • Björgvin Franz Gíslason 
  • Chicago
  • Sviðsetning - Leikfélag Akureyrar

Dansari

  • Þyri Huld Árnadóttir 
  • Hringrás
  • Sviðsetning - Íslenski dansflokkurinn

Danshöfundur

  • Þyri Huld Árnadóttir 
  • Hringrás
  • Sviðsetning - Íslenski dansflokkurinn

Dans og sviðshreyfingar

  • Lee Proud
  • Chicago
  • Sviðsetning - Leikfélag Akureyrar

Sproti ársins

  • Grasrótarstarf óperulistamanna

Heiðursverðlaun Sviðlistarsambands Íslands

  • Arnar Jónsson 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.