Guardiola kveður eftir tvö ár Sindri Sverrisson skrifar 12. júní 2023 11:31 Pep Guardiola hefur nú unnið Meistaradeild Evrópu með bæði Barcelona og Manchester City. Getty/Robert Michael Pep Guardiola vildi lítið tjá sig um framtíð sína eftir að hafa klárað að vinna þrennuna með Manchester City um helgina, með sigri gegn Inter í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.
Virtir miðlar á borð við The Times og The Guardian segja hins vegar ljóst að Guardiola sé ekki á förum frá City í sumar, eftir að hafa stýrt liðinu í fyrsta sinn til sigurs í Meistaradeildinni. Spánverjinn framlengdi samning sinn við City í nóvember síðastliðnum og samþykkti að stýra liðinu fram til sumarsins 2025. The Guardian segir að Guardiola sé hins vegar staðráðinn í að yfirgefa City við lok samningstímans. Guadiola tók við City sumarið 2016 og segir The Guardian að þá hafi allir reiknað við því að hann yrði ekki lengur en þau þrjú ár sem fyrsti samningur hans kvað á um. Guardiola hafði stýrt Barcelona og Bayern München og talið var að hann vildi taka við ítölsku liði eftir tímann hjá City, til að vinna meistaratitla í fjórum bestu deildum Evrópu. Nú er hins vegar talið að Guardiola hafi skipt um skoðun og sé mögulega til í að taka næst við landsliði. Guardiola vonast til þess að fyrirliði City, Ilkay Gündogan, skrifi undir nýjan samning til eins árs við félagið en samningur hans rennur út í þessum mánuði. Þessi 33 ára miðjumaður er með þriggja ára samningstilboð frá Barcelona og er einnig í sigti félaga í Sádi-Arabíu.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Jóhann lenti óvænt í flugi með formanninum og fer ekki fet Enski boltinn Íþróttahjón opna apótek saman: „Þetta var búið að blunda í okkur í einhvern tíma“ Sport Búast við gullregni með sölu á Stefáni til Englands Fótbolti „Líður eins og ég hafi svikið þjóð mína“ Fótbolti Tækling Toni Kroos eyðilagði Evrópumótið fyrir Pedri Fótbolti „Klikkaðir“ FH-ingar á grasi reyna að þyngja það með lóðum Íslenski boltinn Mótmæli sama brotinu tvisvar og var rekinn af velli Fótbolti Sjáðu fernu og dans Viktors, Valsara í stuði og tæpt jöfnunarmark KR Íslenski boltinn Nýliði Minnesota Vikings lést í bílslysi Sport Úrúgvæ sló Brasilíu út í vítaspyrnukeppni Fótbolti Fleiri fréttir Michael Olise mættur til læknisskoðunar hjá Bayern München Jóhann lenti óvænt í flugi með formanninum og fer ekki fet Vistaskipti Kilman gætu breytt framtíð E-deildarliðs Maidenhead Jóhann Berg áfram hjá Burnley Sky biður Nottingham Forest afsökunar Man. Utd bannað að kaupa varnarmann en leyft að spila Hollenska markavélin semur við Manchester City Hringdi í Maríu á miðjum blaðamannafundi: „Ertu ekki að grínast?“ Nýi styrktaraðilinn veðmálafyrirtæki sem stuðlaði hanaat og streymdi klámi Verður áfram hjá Manchester United Evrópumeistarinn Bronze á leið til Chelsea Ratcliffe lætur 250 starfsmenn Man United fara Arsenal með augastað á Calafiori Gefur aðeins grænt ljós á viðræður við Manchester United Undrabarnið Gray til Tottenham Caldentey fer frá Evrópumeisturum Barcelona til Arsenal Man Utd horfir enn á ný til fyrrum lærisveins Ten Hag Borga yfir þrjátíu milljarða fyrir þrjú ár framan á búningum Rauðu djöflanna Manchester United hefur gengið frá kaupum á yfirmanni knattspyrnumála Liverpool afþakkaði boð Newcastle um Gordon fyrir Quansah Elísabet ekki ráðin til Villa Keane bað Maguire afsökunar: „Ég fór yfir strikið“ Nistelrooy snýr aftur til Manchester United Þjálfari Willums á leið til United Shaq vill kaupa hlut í West Ham Manchester United missir fleiri stjörnur Kvennalið Man Utd fært svo pláss sé fyrir karlaliðið Íhuga að selja nafnaréttinn á Old Trafford Mun ekki leyfa kaup og sölur á uppsprengdu verði Vilja spila leik í ensku C-deildinni á bandarískri grundu Sjá meira