Neyddist til að láta soninn fjúka í kjölfar hneykslismáls Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. maí 2023 09:22 Sonur Kishida hefur valdið honum nokkrum vandræðum. AP/Kimimasa Mayama Fumio Kishida, forsætisráðherra Japan, hefur neyðst til að láta son sinn fjúka eftir að myndir fóru í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem sonurinn og aðrir ættingjar sjást fíflast í forsætisráðherrabústaðnum.
Myndirnar eru sagðar hafa verið teknar í samkomu, þar sem viðstaddir stilltu sér upp á tröppum sem notaðar eru fyrir formlegar myndatökur og við ræðupúlt í sal þar sem blaðamannafundir fara fram. Shotaro, sonur Kishida, starfaði sem ráðgjafi föður síns frá 2020. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann er gagnrýndur fyrir að misnota aðstöðu sína en í janúar komst upp að hann hefði notað bifreiðar japanska sendiráðsins í Lundúnum og París í útsýnis- og verslunarferðir. # https://t.co/BegerTCkcN— (@shukan_bunshun) May 29, 2023 Kishida sagðist axla fulla ábyrgð á hneykslinu og að aðstoðarmaður forsætisráðherrans til langs tíma, Takayoshi Yamamoto, myndi taka við af hinum 32 ára Shotaro. Kishida sagðist hafa heilsað samkomugestum en að hann hefði ekki verið viðstaddur um kvöldið, þegar myndirnar voru teknar. Málið þykir afar óheppilegt fyrir Kishida, sem hefur notið vaxandi hylli eftir fund G7-ríkjanna í Hiroshima á dögunum.
Japan Mest lesið „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Innlent Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira