Erlent

Bretar viður­kenna Holodomor sem þjóðar­morð

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Selenskí Úkraínuforseti heimsótti Bretland og Rishi Sunak forsætisráðherra fyrr í mánuðinum.
Selenskí Úkraínuforseti heimsótti Bretland og Rishi Sunak forsætisráðherra fyrr í mánuðinum. Getty

Neðri deild breska þingsins hefur samþykkt tillögu þess efnis að Holodomor verði viðurkennt sem þjóðarmorð. Allt að fimm milljónir Úkraínumanna sultu til bana á fjórða áratugnum vegna gjörða sovéska ríkisins.

Alþingi samþykkti sambærilega þingsályktunartillögu í mars síðastliðnum. Það er að Ísland lýsi því yfir að hungursneyðin Holodomor í Úkraínu, árin 1932 til 1933, hafi verið hópmorð. En leitt hefur verið að því líkur að því að gjörðir stjórnar Jósefs Stalín hafi leitt hungursneyðina af sér.

Volodímír Selenskí, Úkraínuforseti hefur lagt áherslu á málið við ríki heims. Rússar hafa hafnað því að Holodomor hafi verið þjóðarmorð. Á bilinu þrjár til fimm milljónir létust.

Rússar stela korni

Neðri deild breska þingsins greiddi atkvæði með tillögunni á fimmtudag. Það var Pauline Latham, þingmaður Íhaldsflokksins, sem lagði hana fram.

Sagði Latham að þessir atburðir hefðu samhljóm með núverandi stöðu alþjóðamála. Það er að Rússar væru að stela úkraínsku korni á hernumdum úkraínskum svæðum.

„Þess vegna verðum við að veita úkraínskum stjórnvöldum og alþjóðasamfélaginu þá vissu að Bretland, eða að minnsta kosti breska þingið, muni ekki hunsa stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni,“ sagði hún.

Eistar riðu á vaðið

Eistar voru fyrsta þjóðin til að viðurkenna Holodomor sem þjóðarmorð, árið 1993. Ástralar fylgdu í kjölfarið en síðan gerðist lítið sem ekkert í áratug. Eftir samþykkt breska þingsins hafa alls 28 ríkisstjórnir og þjóðþing viðurkennt ódæðið sem og þing Evrópusambandsins.

Þetta eru meðal annars Bandaríkin, Þýskaland, Frakkland, Kanada, Mexíkó, Brasilía og Vatíkanið. Úkraínumenn sjálfir viðurkenndu þjóðarmorðið árið 2006.

Þá hafa fjölmörg önnur ríki undirritað yfirlýsingu í Sameinuðu þjóðunum um að Holodomor hafi verið „harmleikur úkraínsku þjóðarinnar orsakað af ógnarstjórn.“ Meðal annars Danmörk, Finnland, Pólland, Spánn, Argentína og Ísrael.

Flest ríki Afríku, Asíu og Eyjaálfu hafa ekki skrifað undir yfirlýsingar af þessu tagi. Heldur ekki Norðmenn og Svíar.

Ungir drengir safna kartöflum.Getty

Búfénaður féll einnig í stórum stíl í Holodomor.Getty

Faðir þessa drengs var skotinn af hermönnum fyrir að reyna að útvega sér mat.Getty

Lík í heyvagniGetty

Tengdar fréttir

Selenskí þakklátur Íslandi

Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segist vera þakklátur Íslandi fyrir að viðurkenna hungursneyðina í Úkraínu á árunum 1932-1933 sem hópmorð. Alþingi samþykkti í morgun þingsályktunartillögu þess efnis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×