Innlent

Lést þegar hann féll í fjöruna við Arnarstapa

Kjartan Kjartansson skrifar
9596D7A52A87B121E25C5B9AD8A4B00ED4E91D3D0D049F6D902A33D85CAF8C19_713x0

Íslenskur karlmaður á sjötugsaldri lést þegar hann féll fram af björgum við Arnarstapa á Snæfellsnesi í gær. Ekki tókst að komast að manninum fyrr en tæpri klukkustund eftir að tilkynning barst vegna erfiðra aðstæðna á slysstað.

Slysið átti sér stað rétt fyrir hádegi í gær. Lögreglu barst tilkynning um að maður hefði fallið fram af björgum og lægi hreyfingarlaus í fjörunni neðan klettanna, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar á Vesturlandi.

Maðurinn er talinn hafa runnið á aðfallandi grasbala sem var fljúgandi háll og fallið niður um tuttugu metra í vík sem er rétt við höfnina á Arnarstapa og bílastæði við hana, að sögn Jónasar Ottóssonar, lögreglufulltrúa á Vesturlandi.

Aðstæður til björgunarstarfa voru mjög erfiðar. Ekki var hægt að komast að fjörunni nema sjóleiðina. Jónas segir að rétt tæp klukkustund hafi liðið frá því að tilkynningin barst þar til björgunarlið komst að manninum. Læknir sem komst fyrst á staðinn ásamt björgunarsveit úrskurðaði manninn látinn á vettvangi.

Lögreglan rannsakar hvernig slysið bar að. Rigning og þoka var þegar slysið varð og afar hált á bjargbrúninni.

Maðurinn féll í vík rétt við höfnina á Arnarstapa.

Var hluti af hópi ferðamanna

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að þegar fyrstu viðbragðsaðilar komu á vettvang hafi fljótt orðið ljóst að ekki væri hægt að komast að manninum nema síga niður kletta eða sjóleiðina.

Enginn björgunarbátur er í Arnarstapa og og því fóru læknir og sjúkraliði á endanum á smábát úr höfninni að víkinni. Það tók nokkurn tíma þar sem strandveiðimenn á Arnarstapa höfðu gengið tryggilega frá bátum sínum og höfninni fyrir suðvestanhvell sem á að gera í dag.

Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar en hún var í öðru sjúkraflugi þegar kallað barst. Gerðar voru ráðstafanir til þess að hún gæti farið að Arnarstapa en eftir að læknir komst að manninum og úrskuðaði hann látinn var beiðnin afturkölluð.

Jón segir að maðurinn hafi verið hluti af ferðahóp. Starfsfólk Rauða krossins hafi veitt ferðafólkinu og síðar björgunarsveitarfólki áfallahjálp.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×