Enski boltinn

Saman í D-deildinni árið 2018 en berjast nú um sæti í ensku úr­vals­deildinni

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úr leik liðanna fyrr á leiktíðinni.
Úr leik liðanna fyrr á leiktíðinni. Barrington Coombs/Getty Images

Coventry City og Luton Town mætast í því sem hefur verið kallað verðmætasti leikur fótboltans. Um er að ræða úrslitaleik umspils B-deildar á Englandi en sigurvegarinn tryggir sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Áður en keppni hófst í ensku B-deildinni síðasta haust hefðu eflaust ekki mörg spáð því að Coventry og Luton myndu mætast í síðasta leik tímabilsins. 

Talið er að sigurvegari umspilsins muni þéna allt að 265 milljónir punda [46,5 milljarður íslenskra króna] meira á næstu leiktíð þökk sé sjónvarps-, styrktar- og auglýsingasamningum ensku úrvalsdeildarinnar.

Til að gera einvígið enn áhugaverðara er vert að nefna að bæði Coventry og Luton voru í League 2, ensku D-deildinni, árið 2018. Upprisa liðanna tveggja hefur því verið hröð og horfa Hollywood-eigendur Wrexham eflaust á bæði lið með þá drauma að Wrexham geti leikið þetta eftir.

Ekki nóg með það heldur var Coventry á botni B-deildarinnar í október. Í stað þess að reka þjálfarann var Mark Robins treyst fyrir starfinu og er Coventry nú 90 mínútum frá ensku úrvalsdeildinni en þar spilaði félagið síðast árið 2001.

Verðmætasti fótboltaleikur hvers árs fer fram þann 27. maí næstkomandi. Þá kemur í ljós hvort Coventry eða Luton muni leika í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2023-24.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×