Komst lífs af með því að lifa á víni í fimm daga í óbyggðum Ástralíu Atli Ísleifsson skrifar 8. maí 2023 10:03 Konan hafði fest bíl sinn í leðju á fáförnum vegi eftir að hafa tekið ranga beygju á sunnudeginum fyrir viku. Hún fannst á föstudaginn. Lögregla í Viktoríu Lögregla í Ástralíu fann á dögunum 48 ára konu í óbyggðum Viktoríu þar sem hennar hafði verið saknað í fimm daga. Konan komst lífs af með því að neyta einungis sleikipinna og víns sem hún var með í bílnum, en hún hafði fest bíl sinn í leðju á fáförnum vegi.
BBC segir frá því að konan, Lillian Ip, hafi lagt af stað í bílferð á sunnudaginn fyrir viku en tekið ranga beygju og að lokum fest bíl sinn. Fram kemur að Ip drekki ekki að jafnaði en neytt innihald vínflösku þá daga sem hennar var saknað í óbyggðunum. Hún var með sleikipinnana og flöskuna í bílnum og hafði ætlað að gefa móður sinni flöskuna að gjöf . Lögregla um borð í þyrlu fann svo konuna á föstudaginn þar sem hún flaug yfir svæðið við leit. Ip segir í samtali við 9News Australia að það fyrsta sem hafi komið upp í huga hennar þegar hún sá lögregluna hafi verið „vatn og sígarettur“. „Ég þakka guði að lögreglukonan hafi verið með sígarettu.“ Ip segir að hún hafi talið að hún myndi deyja þarna í óbyggðunum. „Það slokknaði á líkama mínum á föstudaginn.“ Þá segir hún að hafi verið kominn á þann stað að skrifa kveðjubréf til fjölskyldu sinnar og sagt að hún elskaði hana. Ip fannst um sextíu kílómetrum frá næsta þorpi, en vegna vanheilsu hafi hún ekki verið fær um að ganga þessa löngu leið til byggða. Hún hafi því ákveðið að halda kyrru fyrir í bílnum. Fram kemur að konan hafi verið flutt á sjúkrahús vegna vökvaskorts, en hún hefur nú aftur snúið til síns heima í Cheltenham, í úthverfi Melbourne í Viktoríu.
Ástralía Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir Rússar hafi framið 183.000 stríðsglæpi „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sjá meira