Innlent

Nauðsynlegt að herða enn frekar á refsiaðgerðum

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Volodymyr Zelenskyy og Sauli Niinisto á blaðamannafundi í hádeginu.
Volodymyr Zelenskyy og Sauli Niinisto á blaðamannafundi í hádeginu. vísir/Einar

Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sagði nauðsynlegt að herða enn fremur á refsiaðgerðum Vesturlanda gagnvart Rússlandi á blaðamannafundi í Finnlandi í dag.

Selenskí Úkraínuforseti og Sauli Niinistö Finnlandsforseti ávörpuðu fjölmiðla í forsetahöllinni í Helsinki í dag. Þétt var setið á fundinum líkt og sést á myndum Einars Árnasonar tökumanns en hann er var í salnum ásamt Heimi Má Péturssyni fréttamanni.

Fulltrúar íslenskra fjölmiðla eru í finnsku forsetahöllinni í dag.vísir/Heimir Már

Selenskí minntist á hversu stutt er á milli Helsinki og átakanna í Úkraínu. Sterkar varnir Úkraínumanna og aðstoð NATO-ríkjanna komi hins vegar í veg fyrir að Rússar nái nokkurn tímann þangað. 

Heimir Már rakti það helsta sem kom fram á fundinum í hádegisfréttum Bylgjunnar og sagði Selenskí meðal annars hafa boðað mikil tíðindi í stríðinu á þessu ári. Þá sagði hann nauðsynlegt að herða enn frekar á refsiaðgerðum gagnvart Rússum og ítrekaði ákall um þotur og hergögn.

Heimir Már Pétursson hlýðir á ræðu Selenskís.vísir/Einar

Selenskí tekur þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna í dag og samkvæmt Stjórnarráðinu stendur til að ræða áframhaldandi stuðning við Úkraínu, umsókn Úkraínu um aðild að Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu og hvernig stuðla megi að friði og hefja efnahagsuppbyggingu í landinu.

Að neðan má sjá frá því þegar Selenskí kom á fund finnska forsetans í dag. 

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun einnig eiga tvíhliða fund með Selenskí í dag. Þar stendur meðal annars til að ræða leiðtogafund Evrópuráðsins sem fer fram í Reykjavík 16. til 17. maí.

Á eftir verður blaðamannafundur norrænu forsætisráðherranna, finnska forsetans og Úkraínuforseta. Sýnt verður frá honum í beinni á Vísi.

Ekki hafði verið tilkynnt um heimsókn Selenskís fyrir fram af öryggisástæðum.vísir/Einar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×