Viðskipti innlent

Skilorðsbundin refsing fyrir skattsvik og 48 milljóna króna sekt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Magnús Scheving Thorsteinsson, fyrrverandi forstjóri Klakka.
Magnús Scheving Thorsteinsson, fyrrverandi forstjóri Klakka.

Magnús Scheving Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Íshesta og fyrrverandi forstjóri Klakka, hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik. Þá var sekt til ríkissjóðs vegna málsins þrefölduð og þarf Magnús að reiða fram 48 milljónir króna.

Magnúsi var gefið að sök meiriháttar brot gegn skattalögum með efnislega röngum skattframtölum árið 2017 og 2018 vegna áranna á undan. Hann hefði ekki talið fram tæplega 58 milljóna króna tekjur einkahlutafélagsins Pólstjörnunnar sem er að fullu í eigu hans.

Héraðsdómur dæmdi Magnús til að greiða rúmar 16 milljónir króna í sekt. Magnús áfrýjaði málinu til Landsréttar og krafðist frávísunar á grundvelli þess að brotið væri á mannréttindum hans með ákærunni. Hann hefði síðar greitt skatt af hinum vantöldu tekjum og því væri verið að refsa honum tvisvar.

Landsréttur horfði til þess að Magnús hefði ekki verið sýknaður af því broti sem honum væri gefið að sök í málinu og því ekki um endurtekna málsmeðferð að ræða. Því væri ekki um að ræða endurtekna málsmeðferð. Þá hefði Magnús ekki sýnt fram á að saksóknin færi í bága við samningsviðauka Mannréttindasáttamála Evrópu. Var frávísunarkröfunni því hafnað.

Landsréttur staðfesti dóminn í héraði þess efnis að sannað teldist að Magnús hefði staðið skil á röngum skattframtölum um rædd ár með því að vantelja tekjur sínar. Sannað væri að það hefði verið gert viljandi. Þannig hefði hann komið sér undan greiðslu skatts. Skipti engu þótt hann hefði, eftir að rannsóknin hófst, greitt skatt af vantöldu tekjunum. Þá hefði brotið verið löngu fullframið.

Ólíkt héraðsdómi taldi Landsréttur brotið heyra undir 262. grein almennra hegningarlaga sem fjallar um ásetning eða stórfellt gáleysi við lög um tekjuskatt. Þótti sex mánaða skilorðsbundinn dómur hæfileg refsing og 47,8 milljóna króna sekt til ríkissjóðs.


Tengdar fréttir

Magnús hættir sem forstjóri Klakka

Magnús Scheving Thorsteinsson, forstjóri Klakka undanfarin sjö ár, hyggst láta af störfum forstjóra félagsins frá og með næstu áramótum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×