Innlent

Íslenskar björgunarsveitir fengu viðurkenningu frá Erdogan

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Svava Ólafsdóttir tekur við orðu frá Erdogan Tyrklandsforseta.
Svava Ólafsdóttir tekur við orðu frá Erdogan Tyrklandsforseta. TCCB

Tyrkir héldu í dag athöfn til að þakka erlendum og tyrkneskum björgunarsveitum sem sinntu björgunarstarfsemi í kjölfar jarðskjálftanna sem riðu yfir í Tyrklandi sjötta febrúar. Fulltrúi íslenskra björgunarsveita var meðal þeirra sem tóku við heiðursorðu frá Tyrklandsforseta á athöfninni.

Svava Ólafsdóttir, björgunarsveitarkona, var hluti af ellefu manna hópi íslenskra björgunarsveitarmanna sem fóru út til Tyrklands í febrúar til að aðstoða við björgunarstarfsemi í kjölfar jarðskjálftanna sem riðu þar yfir í febrúar. Þar af voru níu frá Landsbjörgum og tveir frá Landhelgisgæslunni.

Fréttastofa náði tali af Svövu sem var stödd í Ankara, höfuðborg Tyrklands, og ræddi við hana um athöfnina og tildrög hennar.

Tyrkir vildu sýna þakklæti sitt

„Það var athöfn í dag þar sem Tyrkir sýndu erlendum sveitum sem komu að björgunum í skjálftunum og sínum eigin björgunarsveitamönnum ákveðinn þakklætisvott,“ sagði Svava um athöfnina.

Erdogan heldur ræðu á athöfninni.TCCB

Hún segir athöfnina hafa verið haldna vegna ákveðinna kaflaskipta í viðbragðsaðgerðum Tyrkja þar sem þeir vildu loka málum tengdum jarðskjálftunum.

Það væri þó enn mikið verk óunnið  og margt uppbyggingarstarf eftir. „Það búa þrjár milljónir í gámahúsnæði og aðrir í tjöldum,“ sagði Svava um núverandi ástand í Tyrklandi.

„Við fórum ellefu út í febrúar og ég var bara fulltrúi hópsins,“ sagði Svava og bætti við „þetta skiptir Tyrkina miklu máli, þess vegna mættum við.“

Maður sem festist í rústum hélt ræðu

Á sjálfri athöfninni héldu ýmsir aðilar ræður, þar á meðal Recep Erdogan Tyrklandsforseti, Süleyman Soylu innanríkisráðherra og aðilar sem tengdust jarðskjálftunum beint.

„Það kom maður frá Hatay sem var fastur í rústunum í átta klukkutíma og sagði sína upplifun. Hann var fastur með fjölskyldu sinni og börnum og var bjargað,“ sagði Svava um ræðuhöldin.

„Svo kom einn frá tyrknesku sveitunum, þær eru mjög öflugar hér, og sagði frá sinni upplifun af björgununum. Loks kom ungverskur björgunarsveitarmaður og hélt ræðu.“

Orða fyrir þá sem færðu fórnir í baráttu við jarðskjálftana

Í tilkynningu á vefsíðu embættis Tyrklandsforseta er fjallað um athöfnina sem er titluð „Orðuveitingarathöfn ríkisorðu æðstu fórnar“. 

Þar er vitnað í ræðu Erdogan frá athöfninni þar sem hann sagði „Þið hafið gert okkur virkilega hamingjusöm með því að þiggja boð okkar. Ég vil þakka hverju og einu ykkar, sérstaklega erlendum gestum okkar.“

Þá greindi hann einnig frá tildrögum „Ríkisorðu æðstu fórnar“ sem er nýtilkomin orða hjá Tyrkjum. Markmiðið með veitingu orðunnar er að verðlauna þá „sem sýna fórn í baráttu við faraldra og náttúruhamfarir á borð við jarðskjálfta, gróðurelda og flóð“.

Fjöldi manna tók við orðum á athöfninni í dag.TCCB

Tengdar fréttir

Tala látinna komin í 45 þúsund

Tala látinna eftir jarðskjálftann í Tyrklandi og Sýrlandi er komin í 45 þúsund og óttast er að hún hækki. 264 þúsund íbúðarhús hrundu í Tyrklandi en síðast í gær var þremur bjargað úr rústum þar í landi. Stríðsátök eru hafin á ný í Sýrlandi, sem hamlar björgunarstarfi.

Erfitt að fara heim frá ham­fara­svæðinu í Tyrk­landi

Hluti íslenska hópsins sem fór út til Tyrklands til aðstoðar vegna jarðskjálfanna kom heim í dag og fékk höfðingjalegar mótttökur. Hópstjóri segir að það hafi verið erfitt að yfirgefa landið þegar hörmungarnar standa enn yfir en það eigi eftir að koma í ljós hvernig þær hafi áhrif á íslenska hópinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×