Enski boltinn

„Vorum stað­ráðnir í að vinna þennan leik“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Erik ten Hag ræðir við Victor Lindelöf og Antony.
Erik ten Hag ræðir við Victor Lindelöf og Antony. James Williamson/Getty Images

Erik Ten Hag og lærisveinar hans eru komnir í úrslit ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu, þeirrar elstu og virtustu. Tapið gegn Sevilla á fimmtudagskvöld sat þó enn í Ten Hag er hann ræddi við blaðamenn eftir sigur Manchester United á Brighton & Hove Albion eftir vítaspyrnukeppni á Wembley.

Eftir afhroð í Andalúsíu á fimmtudag þar sem Man United var sparkað út úr Evrópudeildinni af spænsku liði sem er töluvert lakara en þau þrjú sem lærisveinar Ten Hag þurftu að fara í gegnum til að komast í 8-liða úrslit keppninnar þá var hollenski þjálfarinn ánægður með sigurinn gegn Brighton.

„Leikurinn gegn Sevilla var sá versti á tímabilinu, því verður ekki breytt en við getum lært eitthvað af honum og nýtt það þegar fram líða stundir. Það sem við höfum sýnt hér er að við getum höndlað að áfall og komið til baka þó það sé stutt á milli leikja. Nú þurfum við að bæta okkur í að koma til baka í leikjum, í erfiðum aðstæðum á útivöllum. Við verðum að sýna úr hverju við erum gerðir.“

„Þó við höfum spilað illa á fimmtudagskvöld þá voru tækifæri til að koma til baka í þeim leik og komast inn í einvígið á nýjan leik. Ef þú getur komið til baka þremur dögum eftir ósigur þá getur þú gert það á meðan leik stendur. Þetta snýst um að hafa stjórn á tilfinningum sínum, standa saman og snúa leiknum við.“

„Við erum líkamlega og andlega sterkir, við sýndum karakter og persónuleika. Ég get sagt ykkur að það var ekki auðvelt. Við vorum staðráðnir í að vinna þennan leik.“

Ten Hag hrósaði nokkrum af leikmönnum sínum. Þar á meðal David De Gea fyrir fína frammistöðu eftir skelfileg mistök gegn Sevilla. Þá hrósaði hann Marcus Rashford og Jadon Sancho fyrir að stíga upp í vítaspyrnukeppninni.

„De Gea spilaði frábærlega í leiknum, bæði með og án bolta. Átti nokkrar magnaðar markvörslur eins og svo oft áður á leiktíðinni. Við höfum haldið oftast hreinu í ensku úrvalsdeildinni og gerðum það aftur í dag. Við vorum svo staðráðnir í að vinna og börðumst fyrir því. Við vorum skipulagðir, þeir fengu færi en við fengum einnig okkar færi.“

„Marcus og Jadon líður vel á vítapunktinum. Þeir höndluðu þetta vel. Ég held þetta muni hjálpa þeim í framtíðinni. Þeir hikuðu aldrei því þeir eru mjög góðir í að taka vítaspyrnur.“

Manchester United mætir Manchester City í úrslitum ensku bikarkeppninnar þann 3. júní næstkomandi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×